Björn Brynjúlfur nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs

Gengið hefur verið frá ráðningu Björns Brynjúlfs Björnssonar í starf framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands.

Björn Brynjúlfur Björnsson, verðandi framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Björn er framkvæmdastjóri og stofnandi Moodup, hugbúnaðarfyrirtækis sem mælir starfsánægju fyrir vinnustaði. Áður starfaði hann sem efnahags- og rekstrarráðgjafi, hagfræðingur Viðskiptaráðs og ráðgjafi hjá McKinsey & Company. Björn er hagfræðingur að mennt með meistaragráðu frá University of Oxford.

Björn hefur störf hjá Viðskiptaráði þann 1. maí næstkomandi.

Björn segir verkefnið leggjast vel í sig: „Ég hlakka til að mæta aftur til Viðskiptaráðs og vinna þar að jákvæðum breytingum fyrir íslenskt samfélag. Á síðustu árum hef ég öðlast fjölþætta sýn á rekstrarumhverfi fyrirtækja í gegnum störf mín sem frumkvöðull og ráðgjafi, sem verður gott veganesti á þeirri vegferð. Innan raða Viðskiptaráðs má finna breiðan hóp fyrirtækja með reynslumikla stjórnendur. Það verður heiður að starfa með þessu fólki auk stjórnvalda, stjórnsýslu og fleiri aðila.“

Andri Þór Guðmundsson, nýr formaður Viðskiptaráðs, segist hlakka til samstarfsins: „Við hjá Viðskiptaráði erum stolt af því að hafa fengið Björn til liðs við okkur. Hann þekkir vel til starfa ráðsins auk þess að hafa djúpa þekkingu á efnahagsmálum. Reynsla hans og hæfileikar munu efla ráðið sem hreyfiafl framfara fyrir íslenskt atvinnulíf og þjóðfélag. Með Björn í forystu verðum við vel í stakk búin til að styðja við heilbrigt og kraftmikið atvinnulíf, sem er undirstaða framfara og bættra lífskjara.“

Tengt efni

Tilkynning til félaga í Viðskiptaráði

Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, hefur óskað eftir því ...
5. nóv 2012

Mannabreytingar hjá Viðskiptaráði

Haraldur I. Birgisson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, hefur látið af ...
14. feb 2014

Ásta S. Fjeldsted ráðin framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

Gengið hefur verið frá ráðningu Ástu Sigríðar Fjeldsted í starf framkvæmdastjóra ...
30. jan 2017