Nýjar íslenskar reglur fyrir Gerðardóm Viðskiptaráðs

Stjórn Viðskiptaráðs Íslands samþykkti nýverið nýja íslenska útgáfu gerðardómsreglna Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands. Gerðardómur Viðskiptaráðs var stofnaður árið 1930 og er því líklega elsta gerðardómsstofnun landsins. Með notkun gerðardómsins geta aðilar fengið leyst úr ágreiningi með skjótum og öruggum hætti.

Gerðardómsreglurnar hafa að geyma ítarleg ákvæði um málsmeðferð fyrir gerðardómnum. Mörg af þeim ákvæðum sem er að finna í gerðardómsreglunum fela í sér hagræði sem gerir gerðarmeðferð fýsilegri kost en málsmeðferð fyrir almennum dómstólum. Má þar helst nefna eftirfarandi atriði:

  • Hröð úrlausn ágreiningsmála
    • Samkvæmt gerðardómsreglunum skal endanleg úrlausn liggja fyrir innan sex mánaða
    • Heimilt er að semja um að niðurstaða liggi fyrr fyrir
  • Trúnaður gildir um gerðarmeðferðina og dómar eru ekki birtir opinberlega
  • Sérhæfðir dómendur leysa úr ágreiningi aðila
  • Heimilt er að leiða sérfræðivitni fyrir dóminn

Gerðardómsreglurnar má nálgast hér.

Í stjórn gerðardómsins sitja: Andri Árnason hrl. (formaður), Ásthildur Otharsdóttir, Baldvin Björn Haraldsson hrl. (varaformaður), Eiríkur Elís Þorláksson hrl. og Gunnar Sturluson hrl.

Nánari upplýsingar um Gerðardóm Viðskiptaráðs má nálgast á heimasíðu Viðskiptaráðs og hjá Mörtu Guðrúnu Blöndal lögfræðingi ráðsins.

Tengt efni

Viðskiptaráð styður hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsfólks

Umsögn um frumvarp til laga um um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, ...
8. maí 2023

María nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs

María kemur frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu og mun hefja störf ...
12. maí 2023

Gerðardómur Viðskiptaráðs innleiðir stafræna lausn Justikal

"Með tilkomu stafræna réttarkerfisins getum við veitt skjólstæðingum okkar ...
24. apr 2023