Vel heppnaður tengslaviðburður hjá Marel

Tengslaviðburðurinn NÝ-SKÖPUN-NÝ-TENGSL fór fram í tíunda skipti í gærkvöldi. Að þessu sinni bauð Marel heim og tóku þær Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri og Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, yfirmaður vöruþróunar á Íslandi og Bretlandi, á móti gestum. Viðskiptaráð og Icelandic Startups hafa staðið að viðburðinum frá árinu 2009 með það að markmiði að leiða saman þaulreynda stjórnendur og fulltrúa vaxandi fyrirtækja og efna til ánægjulegrar kvöldstundar í skemmtilegu umhverfi.

Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, kom inn á mikilvægi nýsköpunar fyrir samkeppnishæfni landsins og ítrekaði ánægju ráðsins með viðburðinn og samstarfið við Icelandic Startups en viðburðurinn hefur leitt af sér gríðarlega mikilvæg tengsl fyrir hvort um sig rótgróin fyrirtæki sem vilja sífellt endurnýja sig og sprotafyrirtæki sem þurfa breitt bakland þegar verið er að taka sín fyrstu skref.
“Öll fyrirtæki byrja sem hugmynd. Þegar hjólin fara að snúast þurfa frumkvöðlar að taka
fjölmargar ákvarðanir sem snúa að þáttum á borð við stefnumótun, verkferla, ráðningu
starfsmanna, söluleiðir, sókn á erlenda markaði og svo framvegis. Það er því gríðarlega
dýrmætt að fá tækifæri til að leita í reynslubanka fremstu stjórnenda landsins sem eru tilbúnir að miðla þekkingu, reynslu og tengslaneti.”
- Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups

Fulltrúar eftirtalinna sprotafyrirtækja tóku þátt í viðburðinum ásamt völdum hópi æðstu
stjórnenda í íslensku viðskiptalífi:

Atmonia: Þróar umhverfisvæna smáskalaframleiðslu köfnunarefnisáburðar.
Basic RM: Sjálfvirk verðstýring fyrir ferðaþjónustu.
Lava Cheese: Snakk úr hreinum osti. Hugmyndin er sú að besti osturinn sé stökki osturin
sem verður oft eftir á samlokugrillinu.
Flow Education: Nútímavætt námskerfi sem kennir börnum stærðfræði allt að 12x hraðar.
Keynatura: Astaxanthin – Lykill náttúrunnar að góðri heilsu.
Crankwheel: Sérhæfð skjádeililausn fyrir söluteymi.
SAFE Seat: Ódýrt fjaðrandi bátasæti sem kemur í veg fyrir alvarleg bakmeiðsl.
Propose Iceland: Viðburðaþjónusta fyrir ferðamenn á biðilsbuxunum.
Spor í sandinn: ALDIN BIODOME - ný upplifun af grænni náttúru allt árið. Bætum lífstíl og
vellíðan!
Myrkur Games: Þróa The Darken: Echoes of the End, sögudrifinn ævintýraleik sem færir
leikmönnum nýja rauntímasögufrásögn í raunverulegri og grípandi upplifun.

Marel
Með stöðuga nýsköpun að leiðarljósi síðustu 35 ár, hefur Marel umbreyst úr sprotafyrirtæki í alþjóðlegt hátæknifyrirtæki. Árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum félagsins í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Árið 2017 nam sú fjárfesting 58 milljónum evra eða um 7 milljörðum íslenskra króna. Í dag er Marel í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúkling, kjöti og fisk.

Myndir frá viðburðinum má sjá hér.

Tengt efni

Vel heppnað Viðskiptaþing

Viðskiptaþing fór fram fimmtudaginn 8. febrúar síðastliðinn. Yfirskrift þingsins ...
14. feb 2024

Andri nýr formaður Viðskiptaráðs – Ný stjórn kjörin

Aðalfundur Viðskiptaráðs Íslands fór fram í dag. Þar var kunngerð niðurstaða úr ...
7. feb 2024

„Við þurfum raunsæja nálgun“

Ávarp Ara Fenger, formanns Viðskiptaráðs, á Peningamálafundi Viðskiptaráðs sem ...
23. nóv 2023