Viðskiptaráð fagnar hagfelldara fyrirkomulagi námsstuðnings

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til mennta- og menningarmálaráðuneytisins vegna draga að frumvarpi til laga um námslán og námsstyrki. Viðskiptaráð telur frumvarpsdrögin vera til mikilla bóta og vega þar þyngst hagfelldara stuðningsfyrirkomulag og bættar endurheimtur á útlánum sem draga úr rekstraráhættu Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Vonast ráðið til þess að frumvarpið nái fram að ganga.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Í umsögninni kemur meðal annars eftirfarandi fram:

  • Viðskiptaráð fagnar áformum um aukið gagnsæi í formi beinna styrkgreiðslna í stað óbeinna styrkja í formi niðurgreiddra vaxtakjara líkt og nú tíðkast.
  • Nýja fyrirkomulagið væri til þess fallið að auka hvata námsmanna til að ljúka námi hraðar en íslenskir námsmenn ljúka grunn- og framhaldsprófum síðast allra í OECD ríkjunum.
  • Breytingar á fyrirkomulagi við endurgreiðslu námslána eru að mati Viðskiptaráðs til mikillar bóta. Ekki er samræmi á milli fjárhæðar láns og endurgreiðslu í núverandi kerfi, sem veldur misræmi í styrkveitingu til námsmanna og býr til ranga hvata fyrir námsmenn. Þannig fá þeir mesta stuðninginn sem eiga stystan tíma eftir á vinnumarkaði og taka hæstu lánin. Þá eru nemendur jafnframt líklegri til að velja arðbærari námsleiðir samkvæmt nýju fyrirkomulagi.
  • Endurheimtur námslána ættu að batna mikið með þeim breytingum sem frumvarpsdrögin kveða á um, sem mun nauðsynlega draga úr rekstraráhættu LÍN. Þar vega breytingar á fyrirkomulagi endurgreiðslna þyngst.
  • Viðskiptaráð telur ástæðu til að meta hvort 15 milljón króna þak á lántöku hamli sókn nemenda í erlenda skóla af hæsta gæðaflokki.
  • Viðskiptaráð telur stjórn lánasjóðsins eiga að nýta heimild til að fela fjármálafyrirtækjum útborgun lána, innheimtu og aðra daglega afgreiðslu sjóðsins. Mætti jafnvel umorða ákvæði laganna á þann veg að stjórn sjóðsins bæri að bjóða út þau verk sem ekki er þörf á að sjóðurinn sinni sjálfur.
  • Fella ætti út 2. mgr. 18. gr. frumvarpsdraganna sem kveður á um heimild til að fresta allt að helmingi hverrar endurgreiðslu námslána í allt að 60 mánuði vegna fyrstu kaupa lántaka á íbúðarhúsnæði. Ákvæðið er til þess fallið að flækja námslánakerfið, draga úr endurheimtum og auka umsýslukostnað.

Tengt efni

Vel sóttur Peningamálafundur Viðskiptaráðs

Peningamálafundur Viðskiptaráðs fór fram í morgun, 23. nóvember. Yfirskrift ...
23. nóv 2023

Hagsmunamál að fæla ekki burt erlenda fjárfestingu

Umsögn Viðskiptaráðs um áform um lagasetningu um rýni á erlendum fjárfestingum ...
10. júl 2022