Skýr skilaboð um viðkvæmt efnahagsástand

Uppá síðkastið hefur Seðlabankinn verið virkur í útgáfumálum. Fyrst má nefna fyrra hefti Fjármálastöðugleika, því næst annað hefti af Peningamálum og svo stýrivaxtaákvörðun bankans. Eins og þekkt er orðið var stýrivöxtum haldið óbreyttum í 6%, í takt við spár.

Þó deila megi um réttmæti stýrivaxtaákvörðunar peningastefnunefndar er vert að staldra við fjölmörg varnarorð Seðlabankans síðustu daga og vikur, en meðal þeirra má nefna að:

  • Hægt hefur á efnahagsbatanum, einkum vegna lakari horfa í atvinnuvegafjárfestingu sem er vel undir langtíma meðaltali.
  • Áhætta tengd fjármálastöðugleika hefur dregist saman á marga mælikvarða.
  • Þó verður að huga að hugsanlega neikvæðu samspili uppgjöra búa gömlu bankanna, þungrar greiðslubyrði af erlendum skuldum á næstu árum og losun fjármagnshafta.
  • Sé horft til stærðar gjaldeyrisforðans, undirliggjandi viðskiptajöfnuð og afborgunarferils erlendra lána blasir við óskemmtileg mynd 2016 þegar forðinn er uppurinn.
  • Það er því ljóst að lengja þarf í lánum eða endurfjármagna.
  • Til að mæta þungu afborgunarferli þarf töluvert meiri afgang af viðskiptajöfnuði en nú er, ásamt auknu innflæði erlends fjármagns til fjárfestingar innanlands.
  • Ekki þarf að hafa áhyggjur af bólum á hlutabréfamarkaði að því marki að það ógni fjármálastöðugleika, en huga þarf að verklagi á markaði.
  • Nú er tækifæri til að ná verðbólgumarkmiði Seðlabankans og ætlar bankinn að hefja á ný kaup á gjaldeyri til að flýta þar fyrir.
  • Hins vegar losnar mikill fjöldi kjarasamninga á næstu misserum og að jafnaði geta laun ekki hækkað meira en sem nemur verðbólgumarkmiði annars vegar og framleiðniaukningu hins vegar, eða um 4,5%.

 

Af þessu má ráða skýr skilaboð um að efnahagsástandið sé enn á viðkvæmu stigi. Því væri heppilegt ef komandi kjörtímabil myndi hefjast á víðtækri samvinnu nýrra stjórnvalda, hagsmunasamtaka atvinnulífs og launafólks, Seðlabankans sjálfs auk fleiri um markvissar úrbætur.

Haraldur I. Birgisson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

Tengt efni

Vel sóttur Peningamálafundur Viðskiptaráðs

Peningamálafundur Viðskiptaráðs fór fram í morgun, 23. nóvember. Yfirskrift ...
23. nóv 2023

Árangurslitlar aðgerðir á húsnæðismarkaði

„Stuðningsúrræði stjórnvalda hafa verið of almenn í gegnum tíðina og kostað háar ...
4. des 2023

Dauða­færi ríkis­stjórnarinnar til að lækka vaxta­stig

Viðureignin við verðbólguna er nú eitt brýnasta verkefnið á vettvangi ...
7. jún 2023