Stjórnarhættir fyrirtækja - breytingar í fimmtu útgáfu

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja eru nú gefnar út í fimmta skipti á Íslandi. Útgáfuaðilar eru líkt og áður Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Fyrsta útgáfa leiðbeininganna kom út árið 2004 og hafa þær verið endurskoðaðar með reglubundnum hætti frá þeim tíma. Meðfylgjandi er kynning á endurskoðunarferlinu og helstu breytingar frá fyrri útgáfu.

Skoða kynningu

Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á leiðbeiningunum frá fjórðu útgáfu þeirra. Í endurskoðunarferlinu var lögð áhersla á að gera leiðbeiningarnar skýrari og notendavænni með almennum breytingum á formi, uppsetningu og orðalagi. Þá hefur verið bætt úr ýmsum ágöllum í takt við ábendingar frá notendum leiðbeininganna. Að lokum hafa tilmæli leiðbeininganna verið endurskoðuð með það að markmiði að þær henti íslensku atvinnulífi sem best en séu á sama tíma í samræmi við alþjóðlega staðla og þróun.

Skoða kynningu

Tengt efni

Endurskoða þarf íþyngjandi ákvæði persónuverndarlaga

Umsögn Viðskiptaráðs, SA, SI, SFS, SVÞ, SAF, Samorku og SFF um frumvarp til laga ...
25. okt 2022

Dómafordæmi flýti endurskipulagningu

Fimmtudaginn 20. október kvað Hæstiréttur upp dóm í
28. okt 2011

Stjórnarhættir fyrirtækja: leiðbeiningar

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa nú gefið út ...
26. maí 2015