Endurreisn í samstarfi við alþjóðasamfélagið

Til að Ísland geti endurheimt stöðu sína sem öflugur þátttakandi í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi er nauðsynlegt að stjórnvöld leggi ríka áherslu á farsælt samstarf við erlenda aðila, fyrst og fremst með milligöngu og aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Sá vandi sem hefur myndast í efnahagsmálum þjóðarinnar verður aðeins leystur í samstarfi við alþjóðasamfélagið enda ljóst að aðrir kostir myndu leiða til efnahagslegrar einangrunar með tilheyrandi stöðnun og velferðartapi. Það var farsælt samstarf við alþjóðasamfélagið sem losaði íslensku þjóðina úr fjötrum fátæktar á sínum tíma og þetta sama samstarf mun koma þjóðinni á braut varanlegrar endurreisnar.

Sagan sýnir að samningar við alþjóðasamfélagið eru forsenda farsællar endurreisnar þjóða sem lent hafa í alvarlegum efnahagsáföllum. Í tilviki Íslands kallar þetta á að gengið verði endanlega frá samningum um innstæðutryggingar og samningum um greiðslur úr þrotabúum gömlu bankanna eftir því sem eignir duga til. Hér þarf að hafa sanngirni og samstarfsvilja að leiðarljósi til að tryggja sem víðtækasta sátt um niðurstöðu þessara mála. Aðeins þannig mun alþjóðasamfélagið viðurkenna Ísland sem trúverðugt og áreiðanlegt afl á vettvangi alþjóðlegra viðskipta í framtíðinni.

Skoðunina í heild má nálgast hér.

Tengt efni

Ríkið herðir hnútinn á leigumarkaði

Frumvarp um breytingar á húsaleigulögum er enn einn rembihnúturinná leigumarkaðinn
31. ágú 2023

Annarra manna fé

„Það er engu líkara en að Reykjavíkurborg sé að vinna með kómóreyska franka en ...
3. okt 2023