Framþróun og staða fjármálakerfis Íslands - The Internationalisation of Iceland's Financial Sector

Viðskiptaráð Íslands kynnti nýja skýrslu um framþróun og stöðu fjármálakerfis Íslands á fjölmennum fundi í Lundúnum í dag. Skýrslan ber nafnið „The Internationalisation of Iceland’s Financial Sector“og er rituð af þeim dr. Richard Portes prófessor við London Business School og dr. Friðriki Má Baldurssyni prófessor við Háskólann í Reykjavík í samstarfi við Frosta Ólafsson hagfræðing Viðkskiptaráðs.

Fundinn sóttu nærri 200 manns en fundargestir voru að megninu til starfsmenn erlendra fjármálastofnana og greiningaraðilar lánshæfismatsfyrirtækja. Á fundinum fjölluðu prófessorarnir Richard Portes og Friðrik Már Baldursson um niðurstöður skýrslunnar og svöruðu spurningum frá fundargestum. Þá hélt forsætisráðherra Íslands, Geir H. Haarde, ræðu þar sem hann fór yfir stöðu mála í íslensku efnahagslífi.

Fram kom í máli Richard Portes að hann teldi íslensk fjármálafyrirtæki hafa brugðist einstaklega vel við þeim hræringum sem áttu sér stað á vormánuðum 2006. Frá þeim tíma hafi flestir þeir þættir sem sættu gagnrýni verið bættir til muna og staða bankanna því mun sterkari í yfirstandandi lausafjárþurrð. Þrátt fyrir þetta bera íslenskir bankar áhættuálag í fjármögnun sinni sem virðist því fremur hafa með þjóðerni þeirra að gera en styrkleika og rekstrarhorfur.

Með þetta í huga voru áhrif efnahagslegs ójafnvægis á íslensk fjármálafyrirtæki könnuð, þá sérstaklega hár viðskiptahalli og erlend skuldastaða. Þrátt fyrir að viðkomandi hagvísar gefi fulla ástæðu til að vera á verði gagnvart samkeppnishæfni hagkerfisins virðist fjármálakerfið vel í stakk búið til að mæta ytri áföllum í íslensku hagkerfi. Þar vegur þungt sú dreifing áhættu sem alþjóðavæðing þess hefur haft í för með sér og ennfremur hafa stærstu markaðsaðilarnir varið sig gagnvart flestum veigamestu áhrifaþáttum íslenks hagkerfis.

Undanfarin misseri hefur Viðskiptaráð tekið mikilvægt frumkvæði í umræðu um íslenskt fjármála- og efnahagslíf. Upphaf þeirrar vinnu má rekja til útgáfu skýrslunnar Financial Stability in Iceland eftir Frederic Mishkin og Tryggva Þór Herbertsson vorið 2006.  Skýrslan markaði þáttaskil í erfiðri umræðu um íslenskt efnhahagslíf á alþjóðlegum vettvangi.  Síðan þá hefur mikil vinna verið lögð í að útbúa aðgengilegar upplýsingar og miðla þeim til erlendra aðila sem áhuga hafa á íslensku viðskipta- og fjármálalífi. Útgáfa The Internationalisation of Iceland’s Financial Sector er liður í þessu starfi.

Kynningu Dr. Richard Portes má nálgast hér

Skýrsluna má nálgast hér

Um höfundana:
Dr. Richard Portes
Dr. Friðrik Már Baldursson

Hægt er að fá send prentuð eintök af skýrslunni frá Viðskiptaráði með því að hringja í síma: 510-7100 eða með því að senda tölvupóst á netfangið info@chamber.is.

Tengt efni

Velkomin til framtíðarinnar, árið 2003

Landvernd kynnti tillögur um orkuframleiðslu og -skipti til ársins 2040 án ...
27. jún 2022

The Icelandic Economy - 4F 2021

Viðskiptaráð hefur birt nýja ársfjórðungslega útgáfu af The Icelandic Economy. ...
12. okt 2021

The Icelandic Economy - 3F 2021

Viðskiptaráð hefur birt nýjustu útgáfu The Icelandic Economy. Skýrslan er á ...
21. júl 2021