Kjararáð stuðlar enn að upplausn á vinnumarkaði

Viðskiptaráð skorar á nýtt Alþingi að grípa tafarlaust til ráðstafana og draga til baka úrskurði kjararáðs.

- Eftirfarandi ályktun var samþykkt af framkvæmdastjórn Viðskiptaráðs Íslands 21. desember 2017:

Í lögum um kjararáð er kveðið á um að ráðið skuli í úrskurðum sínum taka tillit til þróunar kjaramála á vinnumarkaði. Nýlegar ákvarðarnir kjararáðs um launahækkanir biskups Íslands, forstjóra opinberra stofnana sem og launahækkanir þingmanna og ráðherra á síðasta ári eru hins vegar ekki í neinu samræmi við þróun á vinnumarkaði. Úrskurðirnir setja vinnumarkaðinn í uppnám fyrir komandi kjaraviðræður með ósætti sem ógnar efnahagsstöðugleika landsins.

Viðskiptaráð Íslands skorar á nýtt Alþingi að endurskoða úrskurði Kjararáðs og leggja málið í sáttaferli. Að öðrum kosti er erfitt fyrir aðila vinnumarkaðarins að halda áfram vegferð sinni um bætt vinnubrögð við kjarasamningagerð.

Nýlegar ákvarðanir kjararáðs í andstöðu við stefnumörkun aðila vinnumarkaðarins
Lífskjarabati síðustu ára á sér fá fordæmi. Kaupmáttur launa hefur aukist um rúm 25% á þremur árum. Sterkur hagvöxtur og hagfelldar ytri aðstæður hafa gert þessa þróun mögulega án neikvæðra áhrifa á verðlag. Til að unnt verði að varðveita þennan árangur þurfa launahækkanir næstu ára að þróast í samræmi við getu hagkerfisins til að standa undir þeim.

Á undanförnum árum hafa aðilar vinnumarkaðarins lagt í mikla vinnu við endurskipulagningu á fyrirkomulagi kjarasamningagerðar. Grundvöllur þeirrar vinnu eru markmið um aukinn stöðugleika, lækkun vaxta og stöðugt verðlag. Þannig má bæta kjör heimilanna og styrkja rekstrargrundvöll íslenskra fyrirtækja með heildarhagsmuni að leiðarljósi. Nýlegar ákvarðanir kjararáðs eru í andstöðu við þessa stefnumörkun.

Grunnlaun biskups hafa hækkað um 53%
Með SALEK, rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins, dags. 24. október 2015, var launastefna mótuð til ársloka 2018. Í samkomulaginu fólst að samningsbundnar launabreytingar, að meðtöldum hækkunum framlaga launagreiðenda í lífeyrissjóði, skyldu að hámarki nema 32% á tímabilinu frá nóvember 2013 til ársloka 2018. Gildir það jafnt um kjarasamninga sem þá höfðu verið gerðir og þá sem koma til endurnýjunar frá undirritun samkomulagsins.

Kjararáð hefði átt að taka mið af framangreindri og ríkjandi launastefnu í úrskurðum sínum. Með nýjum úrskurði kjararáðs hafa grunnlaun biskups hækkað um 53% frá árinu 2013 og 75% hækkun hefur orðið á þingfararkaupi frá sama ári. Til samanburðar hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 28% frá nóvember 2013 til hausts 2016[1] og gætir þar mikilla hækkana lægstu launataxta á árinu 2015. Stjórnendur á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 22% á umræddu tímabili (sjá mynd 1).

Lágmarkslaun hafa hækkað umtalsvert meira en hærri laun
Launavísitölur á hinum almenna markaði hafa þróast með nokkuð ólíkum hætti frá undirskrift SALEK samkomulagsins árið 2013. Þannig hafa lágmarkslaun hækkað talsvert meira en hærri laun. Þessi ólíka þróun mismunandi launahópa getur skekkt samanburð við almenna launavísitölu (mynd 2).

Bera ætti saman sambærilega hópa
Vegið meðaltal grunnlauna presta eftir kjarahækkun er 739 þúsund krónur, grunnlaun biskups 1.170 þúsund krónur og grunnlaun alþingismanna 1.101 þúsund. Meðalgrunnlaun stjórnenda á almennum markaði eru 886 þúsund krónur.[2] Tekjuhóparnir eru því allir nokkuð sambærilegir og eðlilegt að þróun þeirra sé með sambærilegu móti. Í úrskurðum kjararáðs er hins vegar vísað til meðaltals launaþróunar allra hópa. Krónutöluhækkanir lægst launuðu hópanna hafa því umtalsverð áhrif á viðmið launahækkana embættismanna, þingmanna, presta og annarra hópa sem heyra undir kjararáð. Fyrir vikið hafa hátekjuhópar kjararáðs hækkað mun meira en sambærilegir hópar á almennum vinnumarkaði (sjá mynd 3).

Nýtt Alþingi grípi til ráðstafana
Ef Alþingi ætlar sér að stuðla að auknu trausti til löggjafans og sátt á vinnumarkaði þá er endurskoðun á ákvörðunum kjararáðs óumflýjanleg. Síðustu úrskurðir falla illa að þeim bættu vinnubrögðum sem aðilar vinnumarkaðarins hafa unnið að á síðustu árum. Atvinnurekendur og stéttarfélög eru á einu máli í þessum efnum og ábyrgð nýs Alþingis því mikil. Viðskiptaráð skorar á þingmenn að grípa tafarlaust til ráðstafana og draga til baka úrskurði kjararáðs.



[1] Hér er miðað við árið 2016 þar sem kjarahækkun presta og biskupa tók í gildi um síðustu áramót. Þá miða laun hópa undir kjararáði við að launatöflu sem birt var 1.júní 2016. Með nýrri launatöflu munu þessi laun hækka í samræmi við verðlagsbreytingar.


[2] Hér er notast við grunnlaun vegna ófullnægjandi upplýsinga um fjölda yfirvinnustunda presta og biskups

Tengt efni

Fimm staðreyndir inn í kjaraviðræður

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði, skrifar um fimm staðreyndir ...
24. jan 2024

Engan ærsladraug í Karphúsið

Ari Fenger, formaður Viðskiptaráðs, fer yfir stöðu mála í kjaraviðræðum aðila ...
29. jan 2024

Hvalir eru ekki blóm

„Ég skil að það sé freistandi að skrifa fréttir um innkaupakörfu áhrifavalds í ...
1. nóv 2023