Samkeppnishæfni Íslands 2015


Niðurstöður alþjóðlegar úttektar IMD viðskiptaháskólans á samkeppnishæfni þjóða verða kynntar fimmtudaginn 28. maí næstkomandi. Af því tilefni efna Viðskiptaráð og VÍB til morgunverðarfundar þar sem niðurstöðurnar fyrir Ísland í alþjóðlegu samhengi verða kynntar.

Meðal ræðumanna verður Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, sem mun ávarpa fundinn. Þá kynnir Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, niðurstöðurnar. Að því loknu fara fram umræður um niðurstöðurnar með leiðtogum úr íslensku viðskiptalífi. Fundarstjóri er Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri VÍB. 

Fundurinn fer fram í Norðurljósum Hörpu frá kl 8.30-10.00. Boðið verður upp á léttar morgunveitingar og ekki þarf að greiða fyrir bílastæði í Hörpu meðan á fundi stendur. 

Skráning fer fram hér.

Hér má sjá upptöku frá fundi um samkeppnishæfni Íslands 2014:

Slóð á upptökuna má nálgast hér.

Tengt efni

Samkeppnishæfni Íslands 2016

VÍB og Viðskiptaráð Íslands bjóða á morgunverðarfund með ráðamönnum ríkis og ...
31. maí 2016

Getur ríkið reddað ódýru húsnæði?

Á opnum morgunfundi VÍB verður fjallað um það hvernig stjórnvöld geta brugðist ...
10. mar 2016

Samkeppnishæfni Íslands 2015 - fundur um úttekt IMD

Viðskiptaráð Íslands og VÍB boða til fundar, fimmtudaginn 28. maí kl. ...
28. maí 2015