Dagskrá Viðskiptaþings 2016

Viðskiptaþing 2016 verður haldið fimmtudaginn 11. febrúar næstkomandi frá kl. 13 til 17. Yfirskrift þingsins er„Héraðsmót eða heimsleikar? Innlendur rekstur í alþjóðlegu samhengi.“

Dagskrá Viðskiptaþings hefur nú verið opinberuð, en efnistök eru fjölbreytt og koma þátttakendur úr ýmsum áttum. Á þinginu verður umræða um aukna framleiðni í forgrunni, en tækniframfarir og ný þekking eru helstu drifkraftar hennar. Í þeim felast bæði tækifæri og ógnanir fyrir þau fyrirtæki sem þegar starfa í dag. Upplýsingatækni, ný viðskiptalíkön, sjálfvirkni og breytt neytendahegðum eru allt viðfangsefni sem hafa áhrif bæði á frumkvöðla og fyrirtækjastjórnendur. 

Dagskrá

Ræða formanns Viðskiptaráðs
Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður Veritas Capital

What Is Next for the Developed World
Ajay Royan, framkvæmdastjóri Mithril Capital Management

What Executives Can Learn from the Mindsets of Entrepreneurs
Amy Cosper, ritstjóri Entrepreneur Magazine

Ræða forsætisráðherra
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Heiminn heim í hérað: með framleiðni að leiðarljósi
Kristín Friðgeirsdóttir, stjórnarformaður Haga og ­prófessor við LBS

UMRÆÐUR - Hver eru viðhorf gesta þingsins?
Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi

Móttaka
Ljúfir tónar og léttar veitingar

Fundarstjóri
Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

Viðskiptaþing er opið öllum og hvetjum við þig til að skrá þig tímanlega í ljósi þess að á síðast þurfti að loka fyrir skráningar viku fyrir þingið vegna aðsóknar.

Nánari upplýsingar og skráningu má nálgast hér

Tengt efni

Jón er hálfviti

Það er þetta með fólkið í opinberri umræðu sem elskar afgerandi lýsingarorð og ...
24. feb 2023

Nauðsynlegt að líta heildstætt á vinnumarkaðinn á Íslandi

Umsögn Viðskiptaráðs um tillögu til þingsályktunar um afnám 70 ára ...
15. feb 2022

Er krónan nógu sterk til að vera sterk?

Hagsmunir allra eru að koma í veg fyrir ofris krónunnar sem leiðir til ...
9. jún 2021