Ensk útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja (e. Corporate Governance Guidelines) eru nú gefnar út á ensku í annað skipti á Íslandi. Útgáfuaðilar eru líkt og áður Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Fyrsta útgáfa ensku leiðbeininganna kom út árið 2012.

Enskri útgáfu ætlað að mæta aukinni alþjóðavæðingu íslenskra fyrirtækja sem og auðvelda erlendum aðilum að kynna sér íslenska stjórnarhætti.

Eins og í íslensku útgáfunni var lögð áhersla á það í endurskoðunarferlinu að gera leiðbeiningarnar skýrari og notendavænni með almennum breytingum á formi, uppsetningu og orðalagi. Þá hefur verið bætt úr ýmsum ágöllum í takt við ábendingar frá notendum leiðbeininganna. Að lokum hafa tilmæli leiðbeininganna verið endurskoðuð með það að markmiði að þær henti íslensku atvinnulífi sem best en séu á sama tíma í samræmi við alþjóðlega staðla og þróun.

Panta má prentuð eintök af enskri útgáfu leiðbeininganna með tölvupósti og kostar eintakið 2.900 kr.

Pdf-útgáfu leiðbeininganna má nálgast á þessari slóð

Nýr vefur opnaður
Samhliða útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja (e. Corporate Governance Guidelines) opnar nýr vefur sem er tileinkaður leiðbeiningunum. Þar má nálgast rafræna útgáfu af leiðbeiningunum, tæmandi lista yfir breytingar frá fyrri útgáfu og ítarefni tengt stjórnarháttum. Rafræn útgáfa leiðbeininganna er gagnvirk og aðlagar sig að tölvum og snjalltækjum af ólíkum stærðum og gerðum. Það er von útgáfuaðila að með þessari breytingu verði leiðbeiningarnar enn aðgengilegri og notendavænni en áður.

Slóð vefsíðunnar er corporategovernance.is.

Útgáfuaðilar leiðbeininganna vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til þeirra fjölmörgu aðila sem veittu aðstoð og ábendingar við endurskoðun leiðbeininganna.

Tengt efni

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja lítur dagsins ljós

Á stafrænum útgáfuviðburði voru helstu breytingar á leiðbeiningum um ...
2. feb 2021

6. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland hafa gefið út 6. ...
5. feb 2021

Lög á viðskiptalífið?

Verslunarráð í samstarfi við lagadeild Háskólans í Reykjavík mun standa fyrir ...
18. feb 2005