Hjallastefnan hlaut byltingarverðlaunin 2019

Byltingarverðlaunin 2019 voru veitt í annað sinn á ráðstefnunni Bylting í stjórnun. Í ár runnu verðlaunin til Hjallastefnunnar sem þótti hafa skarað fram úr öðrum við innleiðingu og notkun nýrra og framsækinna stjórnunaraðferða. Allur salurinn reis úr sætum með lófataki er Margrét Pála Ólafsdóttir tók við viðurkenningunni úr hendi Ástu S. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands.

Myndir frá ráðstefnu Manino og Viðskiptaráðs

Dómnefnd Manino og Viðskiptaráðs Íslands, sem standa að ráðstefnunni, var á einu máli um ómetanlegt framlag Hjallastefnunnar sem sjálfstætt starfandi skóla til jákvæðrar vinnumenningar á Íslandi og valdeflingar starfsfólks.

Ráðstefnan Bylting í stjórnun! var haldin í annað sinn í samstarfi Manino og Viðskiptaráðs. Fjallar ráðstefnan um nútíma stjórnunaraðferðir og hvernig vinnustaðir geti innleitt frelsi á vinnustað með því að efla starfsfólk og búa til vinnukerfi sem laða fram hugmyndaauðgi starfsmanna. Lykilfyrirlesarar voru Traci Fenton stofnandi og eigandi WorldBlu, Garry Ridge forstjóri fyrirtækisins WD40 og Margaret Heffernan, virtur fyrirlesari og frumkvöðull. Pétur Hafsteinsson fjármálastjóri Festi sagði einnig frá reynslu Festis af innleiðingu byltingar í stjórnun. Fundarstjóri var Maríanna Magnúsdóttir, umbreytingaþjálfari Manino.

Manino og Viðskiptaráð Íslands óska Hjallastefnunni innilega til hamingju með viðurkenninguna. Ráðstefnan Bylting í stjórnun! er samstarf Manino og Viðskiptaráðs Íslands og er þetta í annað sinn sem hún er haldin.

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Margrét Pála Ólafsdóttir, höfundur Hjallastefnunnar og Pétur Bergþór Arason, eigandi Manino

Tengt efni

Samkeppnishæfni Íslands stendur í stað

Niðurstöður úttektar IMD háskóla á samkeppnishæfni ríkja voru kynntar á fundi ...
20. jún 2023

Nauðsynlegt er að tryggja samkeppnishæfan vinnumarkað

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ...
15. mar 2023

Marel hlaut viðurkenningu fyrir sjálfbærniskýrslu ársins

Viðurkenning fyrir sjálfbærniskýrslu ársins var veitt í hádeginu við hátíðlega ...
8. jún 2023