Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til velferðarnefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um húsnæðisbætur. Með frumvarpinu er lagt til að stuðningur stjórnvalda við leigjendur íbúðarhúsnæðis verði aukinn og að ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun almennra húsaleigubóta færist frá sveitarfélögunum til ríkisins en greiðsla sérstakra húsaleigubóta verði áfram hjá sveitarfélögum.
Umsóknina í heild sinni má nálgast hér
Í umsögninni kemur eftirfarandi fram:
- Frumvarpið gengur þvert á nýlega úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á skatt- og bótakerfinu hér á landi. Með frumvarpinu er lagt til að útgjaldatengdar húsnæðisbætur verði hækkaðar í stað þess að dregið verði úr þeim.
- Hækkun húsnæðisbóta til leigjenda er illa til þess fallin að ná markmiðum stjórnvalda um aukinn stuðning við leigjendur íbúðarhúsnæðis. Þess í stað er hún til þess fallin að skila leigusölum meiri ábata en leigjendum í formi hærra leiguverðs.
- Að mati ráðsins er eðlilegast að umsjón bæði almennra og sértækra húsleigubóta sé á höndum fjármála- og efnahagsráðuneytisins – sem fer nú þegar með umsjón vaxtabótakerfisins – til að umsjón með húsnæðistengdum stuðningi stjórnvalda verði á einum stað.
- Ráðið hvetur stjórnvöld til að hverfa frá núverandi áformum um hækkun húsnæðisbóta. Þess í stað ætti að draga úr slíkum stuðningi og taka fremur upp beinan fjárhagsstuðning sem einskorðast við efnaminni fjölskyldur.