Framkvæmum framtíðarsýn um fjármálakerfið

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað umsögn um Hvítbók um framtíðarsýn um fjármálakerfið. Ráðið tekur í meginatriðum undir þá framtíðarsýn og meginstoðir sem fram koma í hvítbókinni og hvetur stjórnvöld til að setja vinnu um nauðsynlegar breytingar og nánari skoðun þeirra atriða sem koma til álita ofarlega í forgang. Ekki hefur gefist ráðrúm til að leggja heildstætt mat á allar tillögur og það sem fram kemur í hvítbókinni en að þessu sinni vill Viðskiptaráð leggja áherslu á og ítreka eftirfarandi atriði.

  • Gott regluverk og eftirlit, sem ekki er of íþyngjandi, eru lyklarnir að traustu fjármálakerfi.
  • Lækka þarf og helst afnema bankaskatt, innflæðishöft eiga að að jafnaði ekki að vera til staðar.
  • Grípa þarf til aðgerða til að auka skilvirkni íslensks verðbréfamarkaðar. Skoða ætti að bjóða skattafslátt til fjárfestingar séreignarsparnaðar í verðbréfum.
  • Íbúðalánasjóður ætti að renna inn í einhvern eða einhverja viðskiptabankanna og að hluta inn í ráðuneyti.
  • Ríkið á að setja sér skýra stefnu og áætlun um að selja þá banka sem eru í hans eigu með varfærni og arðsemi að leiðarljósi.

Lesa umsögn í heild sinni

Tengt efni

Stjórnvöld búa ekki til samkeppni

Stjórnvöld búa ekki til samkeppni. Þau hafa aftur á móti mikil áhrif á ...
26. jún 2023

Frumvarp til breytingar á raforkulögum þarfnast talsverðar endurskoðunar

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum nr. ...
15. mar 2023

Gera þarf breytingar á fjölda og fjármögnunarkerfi sveitarfélaga

Umsögn Viðskiptaráðs um drög að stefnu í málefnum sveitarfélaga (mál nr. 72/2023).
19. apr 2023