Gerð þjóðhagsáætlana grundvöllur bættra lífskjara

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna þingsályktunar um undirbúning að gerð þjóðhagsáætlana til langs tíma. Það er afstaða ráðsins að grundvöllur bættra lífskjara felist í langtímastefnu þar sem áhersla er lögð á bætta samkeppnishæfni og þar með aðstæður til verðmætasköpunar.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Í umsögninni kemur m.a. eftirfarandi fram:

  • Viðskiptaráð telur að Íslendingar hafi átt erfitt með að einblína á heildarmyndina, langtímamarkmið og þau tækifæri sem kerfisbreytingum fylgja.
  • Vitnað er í skýrslu McKinsey sem ráðið átti frumkvæði að sumarið 2012. Skýrslan hefur gert fjölmörgum hagsmunaaðilum kleift að ræða framtíðaráskoranir og tækifæri íslenska hagkerfisins með markvissum hætti.
  • Viðskiptaráð telur þjóðhagsáætlanir til lengri tíma geta verið grundvöll áframhaldandi vinnu á sama grundvelli og stutt þannig við aukna langtímastefnumörkun í íslensku samfélagi. Ráðið telur að með slíkum áætlunum munu liggja fyrir betri gögn fyrir mikilvægar ákvarðanatökur ásamt því að þessi kjarni stefnumótunar kemur í veg fyrir að tíma og fjármunum sé sóað í verkefni sem ekki skila verðmætum.

Tengt efni

Gerð þjóðhagsáætlana til langs tíma

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis ...
20. maí 2015