Landmælingar Íslands í samkeppni við einkaaðila?

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um landmælingar og grunnkortagerð. Frumvarpið kveður á um að afnumið verði það lagaskilyrði að gerð og miðlun á stafrænum þekjum hjá Landmælingum Íslands verði í mælikvarðanum 1:50.000 eða minni kvarða. Frumvarpinu er einnig ætlað að afnema gjaldtökuheimild Landmælinga Íslands.

Í umsögninni kemur m.a. eftirfarandi fram:

  • Það fyrirkomulag sem frumvarpið kveður á um er líklegt til þess að eyðileggja rekstrargrundvöll fyrirtækja sem starfa á þessum markaði.
  • Það er ekkert í núgildandi regluverki sem kemur í veg fyrir það að stofnanir sameinist um útboð fyrir gögn af meiri nákvæmni en þau gögn sem Landmælingum Íslands hefur verið heimilt að birta. Það fyrirkomulag sem frumvarpið kveður á um gengur mun lengra en nauðsynlegt er til þess að koma í veg fyrir marginnkaup á gögnum.
  • Ekki hefur verið gerð grein fyrir því hvaða kostnaður kunni að falla á hið opinbera vegna hins breytta fyrirkomulags. Viðskiptaráð telur þörf á að slík úttekt fari fram áður en frumvarpið verður tekið til annarrar umræðu á Alþingi.
  • Ráðið leggur ríka áherslu á að lögfest verði að Landmælingar Íslands bjóði út til einkaaðila öll þau verk sem nauðsynleg eru til að viðhalda og miðla hinum nýja landupplýsingagrunni.
  • Stefnt er að sameiningu þjóðskrár og Landmælinga Íslands og styður ráðið þær áætlanir. Skoða ætti breytingarnar sem frumvarpið kveður á um í samhengi við slíka sameiningu.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Tengt efni

Fimm skattahækkanir á móti hverri lækkun

Frá áramótum 2022 hafa verið gerðar 46 breytingar á skattkerfinu, þar af hafa ...
31. maí 2023

Viðskiptaráð ítrekar ábendingar um atriði sem stríða gegn almannahagsmunum

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur (167. mál).
20. okt 2022

Endurskoða þarf íþyngjandi ákvæði persónuverndarlaga

Umsögn Viðskiptaráðs, SA, SI, SFS, SVÞ, SAF, Samorku og SFF um frumvarp til laga ...
25. okt 2022