Bitbein kosninganna - Að eyða eða fjárfesta?

Vísbending, vikurit um efnahagsmál og nýsköpun birti nýlega yfirgripsmikla skoðun hagfræðings Viðskiptaráðs, Kristrúnar Frostadóttur, sem bar yfirskriftina: Bitbein kosninganna - Að eyða eða fjárfesta?

Umsvif ríkissjóðs og umræða um forgangsröðun málaflokka síðustu ár hefur verið lituð af hruninu þegar ríkið tók á sig verulegar byrðar við fall fjármálastofnana hér á landi. Mikill hagvöxtur hefur þó verið á Íslandi í allnokkur ár eða vel yfir tveimur prósentum árlega frá 2013. Frá sama ári hefur árlega, samkvæmt ríkisreikningi, verið afgangur á rekstri ríkissjóðs.

Í skoðuninni kemur m.a. fram:

  • Ríkissjóður hefur skilað afgangi á hverju ári frá árinu 2013
  • Varlega má áætla að uppsöfnuð fjárfestingarþörf ríkisins sé um 70 ma. króna
  • Hvernig á að stilla af ríkisreksturinn?
  • Mikilvægi fjárfestinga í rannsóknum og þróun

Smelltu hér til að lesa skoðunina.

Skoðunin birtist fyrst í Vísbendingu þann 12. október 2017.

Tengt efni

Ný stjórn Viðskiptaráðs Íslands

Úrslit formanns- og stjórnarkjörs fyrir tímabilið 2022-2024 voru kynnt á ...
10. feb 2022

Ný útgáfa hagskýrslunnar „The Icelandic Economy 2017"

Ný útgáfa skýrslunnar „The Icelandic Economy: Current State, Recent Developments ...
11. ágú 2017

Flugeldasýningar endast stutt

Stundum er sagt að kjósendur fái þá stjórn sem þeir eiga skilið. Á móti má segja ...
24. sep 2021