Einokunarsalar

Þegar kemur að kaupum og sölu fyrirtækja er að mörgu að huga og ýmis álitaefni blasa við á fjölbreyttum sérsviðum, mörg hver sem eðli málsins samkvæmt skipta gríðarlega miklu máli fyrir aðila beggja megin borðsins. Þá er nauðsynlegt að hafa til taks bestu fáanlegu sérfræðinga til þess að gæta þess að rétt sé staðið að málum. Stjórnvöld vilja nú meina að það séu eingöngu fasteignasalar, þrátt fyrir að álitaefnin sem blasi við geti verið ótengd þeirra sérsviði og sérþekkingu.

Afturhvarf til fortíðar

Árið 2015 var einkaréttur fasteignasala til sölumeðferðar fyrirtækja afnuminn með þeim rökum að vandséð væri að menntun og reynsla fasteignasala veitti þeim meiri sérfræðiþekkingu til sölu atvinnufyrirtækja. Ekki þótti því rétt að útiloka aðra sérfræðinga, svo sem endurskoðendur og viðskiptafræðinga, frá því að veita milligöngu við sölu fyrirtækja. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að nú hyggjast stjórnvöld hverfa aftur til fyrra fyrirkomulags að hluta. Ný áform leggja til að fasteignasalar öðlist einkarétt á sölu félaga þar sem megineign hins selda félags er fasteign eða fasteignir.

Hér virðist horft framhjá því að með breytingunni öðlast fasteignasalar mögulega einkarétt á sölu margra íslenskra fyrirtækja sem standa ekki beinlínis í fasteignarekstri, enda nokkuð algengt að stærsta einstaka eign félaga sé fasteign. Fasteignamat atvinnuhúsnæðis fyrir 2019 var 1.116 milljarðar króna og til samanburðar voru allir rekstrarfjármunir allra fyrirtækja í viðskiptahagkerfinu metnir á 3.327 ma.kr. árið 2017. Því má varlega áætla að um þriðjungur allra rekstrarfjármuna íslenskra fyrirtækja sé fólgin í fasteignum og í ljósi þess hve hátt hlutfallið er, er ekki hægt að útiloka að einkarétturinn nái til fyrirtækja sem eiga stóran hluta fjármuna sinna bundna í fasteign en stundi og hafi tekjur fyrst og fremst af annarri starfsemi en rekstri fasteigna.

Ekki er hægt að sjá að það hafi orðið einhverjar breytingar frá árinu 2015 sem víkja til hliðar þeim sjónarmiðum sem þá stóðu fyrir afnámi einkaréttarins. Meginrök stjórnvalda fyrir því að endurvekja þennan einkarétt að hluta eru þó þau að verið sé að draga úr áhættu á peningaþvætti, þar sem fasteignasalar eru tilkynningarskyldir aðilar samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þessar röksemdir standast þó ekki skoðun þar sem lögmenn, endurskoðendur og fjöldi annarra starfsstétta eru einnig tilkynningarskyldir skv. fyrrgreindum lögum. Þetta eru starfsstéttir sem koma að stórum hluta í dag að sölu þeirra fyrirtækja er færa á undir einkaréttinn og ekki þótti rétt að útiloka á grundvelli sérfræðiþekkingar er einkarétturinn var afnuminn. Ekki er því að sjá að lagasetningin myndi hafa í för með sér neina breytingu frá núverandi vernd gegn peningaþvætti, en þrátt fyrir það telja stjórnvöld mögulega fækkun peningaþvættismála vega þyngra en áhrif lagasetningarinnar á samkeppni um sölu félaga. Slík fórn verður að teljast afar illa rökstudd.

Ef fyrirhugaðar breytingar þjóna engum samfélagslegum tilgangi, hvaða ályktun má draga aðra en þá að hér sé verið að ganga hagsmuna fámennrar stéttar?

Höfundur er sérfræðingur á lögfræðisviði Viðskiptaráðs

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 28. ágúst 2019.

Tengt efni

Árangurslitlar aðgerðir á húsnæðismarkaði

„Stuðningsúrræði stjórnvalda hafa verið of almenn í gegnum tíðina og kostað háar ...
4. des 2023