Alþjóðageirinn til bjargar

Hagfræðingar eru snillingar þegar kemur að því að spá fyrir um framtíðina. Snillingar að því leyti að sumir þeirra hafa atvinnu af spám þó að stundum sé eins og öllum mögulegum útkomum sé spáð. Einnig eru sumir hagfræðingar snillingar í að stökkva fram og segja: „Sko, ég sagði það!“. Og í raun fleiri en bara hagfræðingar ef út í það er farið. Hagfræðingar eru þó við nánari skoðun ekki alltaf snillingar þegar kemur að spádómum um framtíðina, rétt eins og annað fólk. Það er mjög auðvelt að spá fyrir um kreppu áratugum saman og segja „Sko, ég sagði það!“ þegar höggið kemur. Klukka sem er stopp er rétt tvisvar á sólarhring.

Lendingu frestað?

Í meira en ár hafa margir, þar með talið undirritaður, viðrað áhyggjur af kólnun í hagkerfinu og því hefur verið spáð að verri tíð sé framundan í efnahagsmálum. Líklega er það enn rétt – öll teikn eru á lofti um um að fádæma góðæri sé að ljúka, í bili að minnsta kosti. Sumar hagtölur sem birst hafa síðustu mánuði benda þó til að endalokum uppsveiflunnar hafi verið frestað um nokkra mánuði, sem er enn eitt dæmið um takmarkaðar spádómsgáfur hagfræðinga – og mannfólks ef út í það er farið.

Nýjar tölur um utanríkisviðskipti bera þetta með sér. Á fyrstu 9 mánuðum ársins jókst útflutningur á föstu gengi um 9% og þar af um heil 11% á þriðja ársfjórðungi. Á hverjum degi frá byrjun janúar til loka september bættu Íslendingar við 307 milljónum króna í útflutningsverðmæti frá síðasta ári, samtals um 84 milljarðar króna á árinu. Sama hvernig á það er litið er þetta mikill vöxtur og gleðileg tíðindi þar sem öflugur útflutningur er grundvallarforsenda þess að við getum búið við öryggi og þau lífsgæði sem þykja sjálfsögð á 21. öldinni.

227 milljarða útflutningurinn sem þú vissir ekki af

Mikill útflutningsvöxtur er engin nýmæli eftir uppgang ferðaþjónustunnar síðustu ár, en það sem nýmæli er að ferðaþjónustan sjálf á ekki nema um fjóra milljarða af þeim 81 milljarði króna sem bæst hafa við útflutning landsmanna, að teknu tillit til gengisbreytinga. Sjávarútvegur og álframleiðsla eiga stóran þátt í þessum vexti, en þó að tekið sé einnig tillit til þeirra er um 34 milljarða aukning útflutnings frá greinum sem sjaldnar er fjallað um og mynda samanlagt um 277 milljarða króna af útflutningi Íslands fyrstu níu mánuði ársins. Stærstur hluti þeirra greina fellur undir alþjóðageirann. Þar ber hæst 12 milljarða innspýting vegna hugverka íslenskra aðila, ríflega fjögurra milljarða aukning útflutningstekna af fjarskiptum, upplýsingatækni og annarri viðskiptaþjónustu, fimm milljarðar frá öðrum iðnaði og þrír milljarðar frá öðrum vöruútflutningi.

Þessi talnasúpa endurspeglar miklu stærri veruleika en einhverjar tölur á blaði. Hún endurspeglar nýtingu íslensks hugvits sem skapar tækifæri, störf og verðmæti. Hún endurspeglar aukinn kaupmátt landsmanna og þannig launahækkanir sem raunverulega skila ávinningi. Hún endurspeglar þó fyrst og fremst að íslensku hagkerfi er fært, ef rétt er haldið á spöðunum, að auka útflutning á breiðum grunni og þannig bæta lífskjör allra landsmanna. Með öflugri og breiðari útflutningi minnka líka sveiflur efnahagslífsins, sem auðveldar okkur hagfræðingum og öllum öðrum að spá fyrir um framtíðina.

Augun á boltanum

Til þess að halda áfram á þessari braut þurfa stjórnvöld að setja enn meiri kraft í að skapa atvinnulífinu stöðugt, hagfellt og samkeppnishæft rekstrarumhverfi. Ekki þarf hvað síst að hlúa að nýsköpun sem á í harðri alþjóðlegri samkeppni og er lífsnauðsynleg til að tryggja góð lífskjör til framtíðar. Nýsköpun er líka nauðsynleg til að takast á við áskoranir framtíðarinnar á við hlýnun jarðar og öldrun þjóðarinnar. Höfum augun á boltanum og látum ekki stríðsyfirlýsingar og hótanir telja okkur í trú um annað.

Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands

Greinin birtist fyrst í Markaðnum í Fréttablaðinu þann 5. desember 2018

Tengt efni

Sprengjusvæði

„Að skiptast á skoðunum er mikilvægt. Það væri þó til mikilla bóta að hafa í ...
7. mar 2024

Hvað eiga Ísland, Mósambík og Kongó sameiginlegt?

Þá séu svo einfaldir útreikningar fremur til þess fallnir að kasta ryki í augun ...
12. apr 2023

Reiðir pennar

Haukur Viðar Alfreðsson, doktorsnemi í skattahagfræði, segir Viðskiptaráð fara ...
15. sep 2022