Hver hefur eftirlit með verðlagseftirliti ASÍ?

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) heldur úti verðlagseftirliti sem í síðustu viku birti úttekt á þróun matvælaverðs undir fyrirsögninni „Vörukarfan hefur hækkað umfram skattkerfisbreytingar frá áramótum“. Þessi niðurstaða vekur athygli í ljósi þess að opinberar tölur benda til þess að hækkun matvælaverðs sé minni en skattabreytingar gefa tilefni til. Er þetta í þriðja sinn á árinu sem ASÍ birtir verðlagskannanir sem ekki standast nánari skoðun.

Ástæðu misræmisins má finna í skökkum forsendum ASÍ. Annars vegar vanáætlar sambandið áhrif skattabreytinga og hins vegar gerir það ekki ráð fyrir áhrifum almennra verðlagsbreytinga. Sé leiðrétt fyrir þessum tveimur þáttum fæst niðurstaða sem er öfug við þá sem ASÍ heldur fram.

Sykurskattur nam um 2,4 ma.kr. árið 2013 en hann var aflagður um áramótin. Neysla heimila á mat og drykkjarvörum nam um 142 ma. kr. á sama ári. Afnám sykurskatts hefði því átt að skila um 1,7% lækkun matvælaverðs (-2,4/142 = -1,7%). Þá gefur hækkun neðra þreps virðisaukaskatts úr 7% í 11% tilefni til 3,7% hækkunar matvælaverðs (1,11/1,07 - 1 = 3,7%). Samanlagt gefa þessar tvær breytingar því tilefni til 2% hækkunar matvælaverðs. Í úttekt ASÍ er hins vegar fullyrt að skattabreytingar gefi einungis tilefni til 1,5% verðhækkunar. Ekki er skýrt frá því hvernig sú niðurstaða er fengin.

Auk þessa gerir ASÍ ráð fyrir að engir aðrir þættir en skattabreytingar og álagning hafi áhrif á vöruverð. Verðlag er hins vegar áhrifaþáttur sem taka þarf tillit til. Almennt verðlag hækkaði um 1,6% á tímabilinu. Án breytinga á álagningu eða sköttum hefði verð á matvælum því átt að hækka sem því nemur.

Samtals gefa skattabreytingar og verðlagsþróun því tilefni til 3,6% hækkunar matvælaverðs á tímabilinu. Samkvæmt vísitölu neysluverðs frá Hagstofu Íslands hækkaði matvælaverð einungis um 2,7% á tímabilinu. Því má áætla að álagning matvöruverslana hafi lækkað um 0,9%. Skattabreytingarnar um áramótin virðast því hafa skilað sér til neytenda að fullu og gott betur.

Þetta er í þriðja sinn á árinu sem ASÍ birtir niðurstöður verðlagsúttektar með villandi hætti. Sambandið hefur ekki brugðist við efnislegri gagnrýni sem Viðskiptaráð og fleiri aðilar hafa lagt fram vegna aðferðafræði og framsetningu niðurstaðna verðlagskannana. Slík vinnubrögð geta hvorki talist fagleg né trúverðug og eru ekki til þess fallin að upplýsa neytendur um raunverulega verðlagsþróun.

Forsætisráðuneytið leggur ASÍ til 30 milljónir á ári til að halda úti verðlagseftirliti ásamt öðrum efnahagsrannsóknum. Í ljósi ofangreinds mætti ætla að tilefni væri til að starfrækja eftirlit með verðlagseftirlitinu til að tryggja að meðferð þessara fjármuna sé í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti. Eðlilegast væri þó að afnema opinber framlög til eftirlitsins. Í dag mælir Hagstofa Íslands verðlagsþróun með nákvæmum hætti og Samkeppniseftirlitið tryggir virka samkeppni á neytendamörkuðum. Frekari aðkoma stjórnvalda ætti að vera óþörf.

Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands
Greinin birtist í Markaðnum miðvikudaginn 8. júlí

Tengt efni

Má aðstoða hið opinbera? 

„Á meðan einkageirinn leiðir framleiðniaukninguna bendir ýmislegt til þess að ...
4. mar 2024

Lífstílsverðbólga stjórnvalda

Lækning lífstílsvanda stjórnvalda er tiltekt og forgangsröðun í útgjöldum ...
23. okt 2023

Kostnaðarsöm leið að göfugu markmiði

Ný greining frá Viðskiptaráði á kostnaði íslenskra fyrirtækja vegna íþyngjandi ...
5. júl 2023