Nýsköpunarlífeyrir


Ein stærsta áskorun íslensks efnahagslífs á næstu áratugum er að auka nýsköpun. Klisja? Kannski, en fyrir sumum klisjum eru góðar ástæður. Þó hægt sé að auka verðmætasköpun í auðlindageiranum eru náttúruauðlindir engu að síður takmarkaðar og útflutningur Íslands einsleitur. Þess vegna þarf að fjölga stoðum íslensks efnahagslífs. Það kallar á nýjar leiðir til verðmætasköpunar og nýrra útflutningsgreina í alþjóðageiranum sem aftur kallar á aukna nýsköpun.

Þrátt fyrir ákall um aukna nýsköpun á hún sumstaðar undir högg að sækja. Til dæmis hefur fjárfesting í sprotafyrirtækjum dregist saman um 81% frá 2015 skv. samantekt Northstack. Einnig eru þau fyrirtæki sem við státum okkur af sem dæmi um velgengni íslenskrar nýsköpunar, til dæmis CCP, Marel og Össur, mörg hver orðin mun eldri en 10 ára og því rótgróin.

Þurfum meiri verðmætasköpun til að njóta efri áranna

Önnur áskorun sem við, líkt og önnur þróuð ríki, stöndum frammi fyrir er að við erum að eldast hratt sem þjóð. Hlutfall lífeyrisþega á móti þeim sem eru starfandi mun tvöfaldast og fara úr um 20% í 40% um miðbik aldarinnar. Þetta þýðir að vinnandi hendur þurfa að sjá fyrir fleirum en áður í gegnum lífeyris- og velferðarkerfið. Stór áskorun – jafnvel þó að sjálfvirknivæðing og tækniframfarir muni vonandi auðvelda okkur að takast á við hana.

Hér eru því í raun tvær áskoranir: Annars vegar mikilvægi þess að auka nýsköpun hvarvetna og hins vegar takast á við breytta aldurssamsetningu. Báðar eru þær samofnar hagsæld Íslands til framtíðar. Getum við leyst þær samtímis?

Lífeyrissjóðir þurfa að horfa annað

Til að standa undir fjölgun lífeyrisþega á komandi áratugum þurfa lífeyrissjóðir að skila góðri ávöxtun og miða réttindi sjóðsfélaga við að ávöxtunin sé 3,5% að teknu tilliti til verðbólgu. Lækkandi vaxtastig hér á landi og erlendis teflir því í tvísýnu og óljóst er hvernig hægt er að ná fram 3,5% raunávöxtun til lengdar án framleiðniaukningar sem er meiri en við höfum séð á síðustu áratugum. Einnig er ljóst að núverandi fjárfestingarumhverfi sníðir lífeyrissjóðum þröngan stakk, þar sem sjóðirnir eiga á hátt í helming skráðra hlutabréfa og oft stóran hlut í félögum í beinni samkeppni.

Með öðrum orðum þurfa lífeyrissjóðirnir, og þannig lífeyrisþegar framtíðarinnar, fleiri stoðir undir verðmætasköpun í landinu og að horfa í auknum mæli á aðra fjárfestingarkosti. Vandséð er hvernig það getur gerst án aukinnar áherslu á nýja tækni og þekkingu – nýsköpun. Vissulega þurfa sjóðirnir einnig að fjárfesta meira erlendis, en það er háð stöðu á gjaldeyrismarkaði hverju sinni og nýjar fjárfestingar innanlands munu áfram eiga sér stað.

Aukin nýsköpun er hagsmunamál lífeyrissjóðanna

Þó að skilningur forsvarsmanna lífeyrissjóða á mikilvægi nýsköpunar sé hér ekki dreginn í efa mætti sýna skilninginn betur í verki. Ef hlutfall eigna lífeyrissjóða í óskráðum hlutabréfum er vísbending þá hefur það lækkað úr 4% í aðeins 3% frá 2013 til 2016, en sprota- og nýsköpunarfyrirtæki eru nær alltaf óskráð. Einnig má nefna að vægi rannsóknar og þróunar (R&Þ)[1] er minna í fyrirtækjum hér á landi heldur en í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð. Til að R&Þ aukist skiptir stefna eigenda fyrirtækja máli og þar eru lífeyrissjóðirnir sem fyrr segir umsvifamiklir.

Lífeyrissjóðir sem stofnanafjárfestar eiga ekki að vera ráðandi í sprotafyrirtækjum á Íslandi og munu seint verða leiðandi í nýsköpun. Engu að síður hljóta að vera tækifæri til að styðja mun betur við nýsköpun – bæði með auknum fjárfestingum lífeyrissjóða í ungum framsæknum fyrirtækjum og ekki síður innan rótgróinna fyrirtækja í eigu sjóðanna. Hagsmunir lífeyrissjóðanna og samfélagsins í heild eru nefnilega þeir sömu þegar allt kemur til alls – öflugt efnahagslíf sem sækir fram með nýsköpun og getur séð fyrir fólki á efri árunum.

Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands

Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins, 14. mars 2018


[1] Rannsóknir og þróun í fyrirtækum sem hlutfall af landsframleiðslu

Tengt efni

Úthlutað úr Framtíðarsjóði Viðskiptaráðs 

Sex verkefni fengu styrk úr Framtíðarsjóði Viðskiptaráðs Íslands
23. feb 2024

Hver er þín verðbólga?

Viðskiptaráð hefur sett upp reiknivél sem gerir öllum kleift að reikna sína ...
29. mar 2023

Viðskiptaráð styður hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsfólks

Umsögn um frumvarp til laga um um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, ...
8. maí 2023