Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Endurbættar leiðbeiningar eru hvati fyrir viðskiptalífið að gera betur.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og NASDAQ OMX Iceland gáfu út í dag endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Í þessari 3. útgáfu leiðbeininganna er sérstaklega horft til sambærilegra leiðbeininga frá öðrum löndum og forskriftar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu. Einnig eru fleiri og ítarlegri ákvæði í nýjum leiðbeiningum og gerðar eru ríkari kröfur til stjórnenda fyrirtækja en áður, á nær öllum sviðum.

Leiðbeiningarnar má nálgast hér

„Skemmst er frá því að segja að þörf er á að bæta stjórnarhætti í íslensku viðskiptalífi. Markmið nýrra leiðbeininga er að  stuðla að þessu markmiði. Í þessu felst meðal annars að  bæta stjórnarhætti og viðskiptasiðferði, hvetja til aukinnar upplýsingagjafar til viðskiptalífsins og opnari og öflugari samskipta á milli fyrirtækis, hluthafa, viðskiptavina og annarra hagsmunaaðila. Leiðbeiningunum er þannig ætlað að vera þáttur í uppbyggingu trausts og gegnsæis í íslensku viðskiptalífi. Við köllum eftir víðtæku samstarfi við fyrirtæki, fjárfesta, fjölmiðla, menntastofnanir og rannsóknaraðila um fylgni við leiðbeiningarnar, en virk þátttaka allra  leggur grunninn að betri stjórnarháttum.“ sagði Þórður Friðjónsson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland og formaður starfshóps um stjórnarhætti fyrirtækja, á blaðamannafundi í morgun þar sem Gylfa Magnússyni, viðskiptaráðherra, var afhent fyrsta eintak leiðbeininganna.

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, sagði m.a. afar mikilvægt að samstaða myndist um að draga lærdóm af því sem miður fór. Að hans mati er íslenskt atvinnulíf á langri vegferð til bata og endurreisnar. Gylfi sagði leiðbeiningarnar geta verið fyrsta skrefið á þeirri vegferð og tilvist þeirra væri jafnframt mikilvæg í ljósi þess að ekki væri unnt að setja lög um alla hluti og álitamál tengd atvinnurekstri.

Á fundinum voru jafnframt viðstaddir fulltrúar nokkurra þeirra aðila sem aðstoðuðu við gerð nýju leiðbeininganna, þ.m.t. fulltrúar PricewaterhouseCoopers og Eþikos miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja auk Þorkels Sigurlaugssonar framkvæmdastjóra hjá Háskólanum í Reykjavík.

Nýjar leiðbeiningar hafa víðtækara gildissvið en áður, þeim er ekki einungis beint að skráðum félögum heldur öllum félögum sem teljast til eininga tengdum almannahagsmunum. Helstu nýjungar leiðbeininganna eru:
- Nýr kafli um hluthafafundi.
- Hlutverk stjórnar skýrð og útfærð nánar.
- Hnykkt er á mikilvægi samstarfs og markmiðasetningar.
- Nýr kafli um innra eftirlit og áhættustýringu.
- Nýr kafli um siðareglur og samfélagslega ábyrgð.
- Nýr kafli um samskipti stjórnar við hluthafa.
- Nýr kafli um stjórnarformann, helstu skyldur.
- Nýr kafli um framkvæmdastjóra, helstu skyldur.
- Kaflinn um endurskoðunarnefnd er færður til samræmis við nýlega lagasetningu.
- Hlutverk starfskjaranefndar skýrt nánar og nýr kafli um grundvallaratriði starfskjarastefnu.
- Nýr kafli um tilnefningarnefnd.
- Upplýsingagjöf er bætt til muna, bæði til hluthafa og annarra hagsmunaaðila, í ársreikningum og á vefsíðu.

Fjöldi fyrirtækja hefur sýnt endurskoðuðum leiðbeiningum áhuga og telja mikilvægt að til staðar séu skýr tilmæli af þessu tagi. Meðal þeirra eru fyrirtæki úr flestum atvinngreinum og af mörgum stærðum, t.a.m. Lýsi, Össur, CCP, Alcoa, Auður Capital, Grandi, N1, Veritas, Icelandair Group, Mannvit, Ölgerðin og Marel. Eins og gefur að skilja er þessi listi fjarri því að vera tæmandi.

Til að auka líkur á markvissri eftirfylgni, munu útgáfuaðilar fá til liðsinnis við sig nýtt rannsóknarsetur um stjórnarhætti fyrirtækja. Setrið verður fengið til að framkvæma úttekt á eftirfylgni að ákveðnum tíma liðnum, sem nýtt verður til aðhaldsaðgerða.

Nánari upplýsingar veita:

Viðskiptaráð Íslands: Haraldur I. Birgisson, s. 822-7570
NASDAQ OMX Iceland: Kristín Jóhannsdóttir, s. 868-9836
Samtök atvinnulífsins: Hörður Vilberg, s. 821-0005

Tengt efni

Dauða­færi ríkis­stjórnarinnar til að lækka vaxta­stig

Viðureignin við verðbólguna er nú eitt brýnasta verkefnið á vettvangi ...
7. jún 2023

Góðir stjórnar­hættir - hvernig og hvers vegna?

Tilnefningarnefndir er dæmi um viðfangsefni sem halda þarf áfram að móta til ...
8. mar 2023

Hversu oft má fara með rangt mál?

Sökum stærðfræðilegs ómöguleika getur krafan um að laun fylgi dæmigerðum ...
25. jan 2023