Samfélagsskýrsla 2019

Festa, Stjórnvísi og Viðskiptaráð auglýsa eftir tillögum að fyrirtæki eða stofnun sem hlýtur viðurkenningu fyrir samfélagsskýrslu ársins 2019.

Tilnefndu samfélagsskýrslu ársins hér

Viðurkenningu fyrir samfélagsskýrslu ársins hlýtur fyrirtæki eða stofnun sem birtir upplýsingar um samfélagsábyrgð sína með markvissum, vönduðum og nútímalegum hætti í skýrslum sem geta verið í formi vefsíðna, rafrænna skjala eða með annarri framsetningu sem hentar þeim sem áhuga hafa, s.s. fjárfestum, viðskiptavinum, samstarfsaðilum, yfirvöldum og/eða almenningi. Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í fyrra og eru tilnefndar samfélagsskýrslur birtar á heimasíðu Festu.

Með viðurkenningunni vilja Festa, Stjórnvísi og Viðskiptaráð hvetja fyrirtæki og stofnanir til að setja sér mælanleg markmið og birta opinberlega og reglulega, með vönduðum hætti, upplýsingar um hvernig samfélagsábyrgð og sjálfbærni í rekstri fyrirtækja kemur þeim og samfélaginu að gagni.

Fresturinn til að senda inn tillögur rennur út 29. maí 2019. Fyrirtækjum og stofnunum er frjálst að tilnefna eigin skýrslur. Dómnefnd er skipuð af Festu, Stjórnvísi og Viðskiptaráði og metur allar tillögur sem berast. Jafnframt getur dómnefnd byggt val sitt á eigin frumkvæði. Viðurkenningin verður afhent við hátíðlega athöfn þann 13. júní 2019.

Tengt efni

Sprengjusvæði

„Að skiptast á skoðunum er mikilvægt. Það væri þó til mikilla bóta að hafa í ...
7. mar 2024

Marel hlaut viðurkenningu fyrir sjálfbærniskýrslu ársins

Viðurkenning fyrir sjálfbærniskýrslu ársins var veitt í hádeginu við hátíðlega ...
8. jún 2023

Viltu tilnefna sjálfbærniskýrslu ársins?

Viðskiptaráð, Festa og Stjórnvísi veita viðurkenningu fyrir sjálfbærniskýrslu ársins
12. apr 2023