Viðskiptaþing 2019

Uppselt er á Viðskiptaþing 2019. Áhugasamir geta skráð sig á biðlista hér fyrir neðan.

SKYGGNI NÁNAST EKKERT - FORYSTA Í HEIMI ÓVISSU

Áskoranir nútímaleiðtoga hafa breyst í takt við gífurlegt upplýsingaflæði og tækniframfarir. Auknar áherslur á viðskiptasiðferði, samfélagsábyrgð og sjálfbærni eru ennfremur að gjörbreyta viðskiptaháttum. Viðskiptaþing 2019 fjallar um hvernig leiðtoginn fetar farsælan veg í heimi óvissu þar sem skyggni er nánast ekkert.

Aðalfyrirlesarar þingsins eru Paul Polman, forstjóri Unilever (2009-2018) og Valerie G. Keller, forstjóri Ernst & Young - Beacon Institute

  • Hilton Nordica
  • Fimmtudaginn 14. febrúar 2019
  • 13:00 - 17:00
Verð
Aðildarfélagar (ef 3 eða fleiri gestir) 15.900 kr.
Aðildarfélagar (ef 1-2 gestir) 17.900 kr.
Almennt gjald 25.900 kr.


Dagskrá Viðskiptaþings 2019

Paul Polman

er fyrrum forstjóri UNILEVER, eins stærsta fyrirtækis heims og einn helsti forkólfur viðskiptasiðferðis.

“This is a great time for brands which can provide a beacon of trust for consumers. These days, CEOs don’t just get judged by how well their share prices are doing, but by what impact they are having on society.”

  • Forstjóri Unilever frá árinu 2009
  • Stjórnarformaður alþjóðaviðskiptaráðsins (e. ICC)
  • Meðlimur alþjóðaefnahagsráðsins (e. World Economic Forum)
  • Stjórnarformaður The B-Team
  • Varastjórnarformaður UN Global Compact
  • Stjórnarmeðlimur alþjóða neytendavöruráðsins (e. Consumer Good Forum)
  • Fyrrum stjórnarformaður alþjóða viðskiptaráðsins um sjálfbæra þróun (e. World Business Council for Sustainable Development)


Valerie G. Keller

er forstjóri Ernst & Young - Beacon Institute og talsmaður tilgangsdrifinnar leiðtogafærni (e. purpose driven leadership) með langtímavirði að leiðarljósi.

  • Forstjóri Ernst & Young – Beacon Institute
  • Ein af ungum leiðtogum alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum Young Global Leader)
  • Framkvæmdastjóri hjá Ernst & Young LLP
  • Situr í ráðgjafaráði Global Thinkers Forum, World Policy Institute ogWomanity US
  • Verðlaunahafi JP Morgan Chase's 20 Under 40 og Change Agent Network's Humanitarian of the Year awards
  • Ráðgjafi þingnefnda Bandaríkjanna
  • Stofnaði og leiddi aðgerðaáætlanir við enduruppbyggingu heilbrigðis- oghúsnæðiskerfisins í kjölfar fellibylsins Katrina

Paul Polman og Valerie G. Keller hafa lengi unnið náið saman að breyttum og bættum viðskiptaháttum á heimsvísu.

Tengt efni

Átján fyrirmyndarfyrirtækjum í stjórnarháttum veitt viðurkenning

Hópur fyrirtækja í fjölbreyttri starfsemi hlaut í dag verðlaun fyrir góða ...
22. ágú 2023

Lífstílsverðbólga stjórnvalda

Lækning lífstílsvanda stjórnvalda er tiltekt og forgangsröðun í útgjöldum ...
23. okt 2023

Velkomin til framtíðarinnar, árið 2003

Landvernd kynnti tillögur um orkuframleiðslu og -skipti til ársins 2040 án ...
27. jún 2022