Viðskiptaráð Íslands

Afnám einkaréttar ríkisins á póstmarkaði tímabært

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til innanríkisráðuneytisins um drög að frumvarpi um póstþjónustu. Með frumvarpsdrögunum er lagt til að einkaréttur ríkisins á sviði póstþjónustu verði lagður niður og opnað verði fyrir samkeppni á póstmarkaði. Viðskiptaráð fagnar þessu skrefi og tekur heilshugar undir meginefni frumvarpsins.

Umsögnina í heild sinni má nálgast hér

Í umsögninni kemur eftirfarandi fram:

  • Stjórnvöld eru hvött til að huga að breyttu eignarhaldi á Íslandspósti hf. enda margvíslegar áskoranir sem fylgja því að starfrækja fyrirtæki í opinberri eigu á samkeppnismarkaði.
  • Samhliða minnkandi eftirspurn eftir hefðbundinni póstþjónustu dregur úr hagkvæmni þessa rekstrar. Markmið Íslandspósts hf. um að skila árlegum hagnaði sem nemur 10% af eigin fé og samhliða auka verðmæti fyrirtækisins með því að stuðla að arðbærum vexti eru ósamræmanleg með hliðsjón af þróun á hefðbundnum póstþjónustumarkaði.
  • Viðskiptaráð telur að skilgreina ætti grundvallarmarkmið alþjónustu á póstmarkaði til framtíðar með þeim hætti að umgjörð stuðli að gagnsæi á markaði og virku samkeppnisumhverfi, tryggi viðunandi alþjónustu með lágmarkskostnaði fyrir hið opinbera og stuðli að hagkvæmum rekstri og eignarhaldi á póstmarkaði. Afnám einkaréttar er fyrsta skrefið í átt að því að ofangreindum markmiðum sé náð. 

Tengt efni

Umsögn um frumvarp til laga um Nýsköpunarsjóðinn Kríu

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind áform. Ráðið fagnar að með því sé stigið skref í átt að sameiningu sjóða sem falla undir málefnasvið …
30. apríl 2024

Löngu tímabært skref að afnema einkarétt póstþjónustu

Viðskiptaráð hvetur til þess að frumvarp til laga um póstþjónustu verði samþykkt.
7. desember 2018

Ísland eina EES landið með einkarétt ríkis á póstþjónustu

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um drög að frumvarpi um póstþjónustu. Með frumvarpsdrögunum er lagt …
16. ágúst 2017

Brýnt að halda inni ákvæði um samkeppnismat

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til fjárlaganefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um opinber innkaup. Margar af þeim breytingum sem lagðar …
27. maí 2016

Lagafrumvarp um aðgerðir til að draga úr reglubyrði atvinnulífsins og efla samkeppni

Viðskiptaráð Íslands hefur sent inn umsögn til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis um frumvarp til laga um aðgerðir til að draga úr …
29. nóvember 2013

Opinber samkeppnisrekstur í net- og upplýsingakerfum

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um frumvarp til laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. Telur ráðið m.a. að hið opinbera eigi …
24. ágúst 2018