Viðskiptaráð Íslands

Brýnt að halda inni ákvæði um samkeppnismat

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til fjárlaganefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um opinber innkaup. Í frumvarpinu er mælt fyrir um margvíslegar breytingar á fyrirkomulagi við innkaup opinberra aðila.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Í umsögninni kemur m.a. eftirfarandi fram:

  • Margar af þeim breytingum sem lagðar eru til með frumvarpinu eru jákvæðar og til þess fallnar að stuðla að aukinni hagkvæmni í opinberum innkaupum.
  • Viðskiptaráð gerir alvarlegar athugasemdir við afnám svokallaðs samkeppnismats við framkvæmd útboða í gegnum miðlægar innkaupastofnanir í öðrum ríkjum. Að mati ráðsins er brýnt að halda inni ákvæði um að samkeppnismat fari fram og að slíkt mat verði rýnt af Samkeppniseftirlitinu hverju sinni. Telur ráðið að samkeppnismat sé forsenda þess að innkaupastefna hins opinbera taki tillit til heildaráhrifa útboðs í gegnum miðlæga innkaupastofnun á markaði og afkomu hins opinbera.
  • Nauðsynlegt er að endurskilgreina hlutverk og ábyrgð þeirra aðila sem koma að opinberum innkaupum. Í núgildandi lögum er ábyrgð þeirra of dreifð, skortur er á aga í innkaupum og reglufylgni er ábótavant. Ávinningur af aukinni eftirfylgni innkaupastefnu hins opinbera væri verulegur.
  • Hvatti ráðið jafnframt til umbóta á sviði þjónustusamninga er varða kaup og leigu hins opinbera á fasteignum. 

Tengt efni

Umsögn um frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint mál um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu. Ráðið skilaði umsögn við drög að frumvarpi í samráðsgátt …
8. apríl 2024

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum

Viðskiptaráð hefur komið á framfæri umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum nr. 36/1994 (húsnæðisöryggi og réttarstaða …
25. mars 2024

Umsögn um áform um breytingar á lögum um opinber innkaup

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind áform, samkvæmt þeim er ætlunin að skýra tiltekin ákvæði og auka sveigjanleika …
6. mars 2024

Afnám samkeppnismats óskynsamlegt

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna draga að frumvarpi til laga um opinber innkaup. Ráðið gerir …
22. janúar 2016

Breyting upplýsingalaga: gott markmið en íþyngjandi útfærsla

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar vegna frumvarps til laga um breytingu á upplýsingalögum. Með frumvarpinu …
26. október 2015

Breyting á lögum um greiðsluþjónustu

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 120/2011 um …
6. nóvember 2013