Innan raða Viðskiptaráðs eru fyrirtæki í fjölbreyttri starfsemi, þar má nefna ferðaþjónustu, veitingar, fjármál, tryggingar, framleiðslu, hátækni, nýsköpun, ráðgjöf, samgöngur, fjarskipti, sjávarútveg, útgáfu, miðlun, þjónustu og verslun.
Reglulega bætast nýir félagar í hópinn en fjöldi fyrirtækja hefur starfað með Viðskiptaráði frá upphafi.
Viðskiptaráð vinnur að því að efla íslenskt atvinnulíf og skapa þannig forsendur til framfara og bættra lífskjara. Við erum frjáls félagasamtök sem hafa starfað samkvæmt þessu leiðarljósi frá árinu 1917.