Viðskiptaráð Íslands

Útborgunardagurinn er í dag

Útborgunardagurinn 2025 er í dag, þann 27. júní. Frá þessum degi byrjar starfsmaður að vinna fyrir útborguðum launum, en frá áramótum þar til nú hefur hann unnið fyrir sköttum, réttindum og lífeyrissparnaði.

Í dag, þann 27. júní, byrjar starfsmaður í fullu starfi að fá útborgað fyrir vinnu sína. Þetta er niðurstaða úttektar Viðskiptaráðs á launafleygnum svokallaða, sem er mismunurinn á launakostnaði vinnuveitanda og útborguðum launum starfsmanns. Þetta er annað árið í röð sem ráðið framkvæmir úttektina, en útborgunardagurinn stendur í stað milli ára.

Helmingur fer í annað en útborguð laun

Vinnuveitandi þarf í dag að leggja út rúma milljón króna til að greiða starfsmanni 753 þúsund krónur í mánaðarlaun, sem voru miðgildi launa hjá fólki í fullu starfi árið 2024. Eftir tekjuskatt og lífeyrisgreiðslur fær starfsmaðurinn síðan 547 þúsund krónur útborgaðar. Af launakostnaði vinnuveitanda fer því um helmingur í skatta, lífeyrisgreiðslur og önnur réttindi.

Umreiknað í fjölda daga fæst niðurstaðan að fyrstu 178 dagar þessa árs hafa farið í að vinna fyrir öðru en útborguðum launum. Þannig má segja að starfsmaður sem vinnur allt árið hafi einungis unnið fyrir sköttum, réttindum og lífeyrisgreiðslum frá áramótum til loka gærdagsins – og byrji í dag að vinna fyrir útborguðum launum.

Birta mætti launaseðilinn í heild

Meirihluti launafleygsins er greiddur af vinnuveitanda, eða um 60%. Þar vega þyngst mótframlag í lífeyrissjóð, orlof og tryggingagjald. Um 40% falla síðan á starfsmanninn í formi tekjuskatts, útsvars og lífeyrissparnaðar. Allir þessir kostnaðarliðir lækka útborguð mánaðarlaun. Þar skiptir ekki máli hvort þeir séu greiddir af vinnuveitandanum eða starfsmanninum.

Viðskiptaráð hvetur vinnuveitendur til að uppfæra launaseðla þannig að allur launafleygurinn sé þar sýnilegur. Með þeim hætti getur starfsfólk séð alla liði sem valda því að útborguð laun þeirra lækka. Þá mættu vinnuveitendur einnig sundurliða útsvar sérstaklega, svo starfsfólk sjái skiptingu skattgreiðslna á milli ríkis og sveitarfélaga.

Framsetning launaseðla er frjáls á Íslandi, svo lengi sem ákvæði kjarasamninga um upplýsingagjöf eru uppfyllt, svo vinnuveitendur geta gert þessa breytingu í dag.

Mörg tækifæri til að flýta útborgunardeginum

Launafleygurinn samanstendur af sköttum, lífeyrisgreiðslum og ýmsum réttindum. Tækifæri eru til að draga úr umfangi eftirfarandi flokka:

  • Lækkun tekjuskatts: Lækkun tekjuskatts um 2 prósentustig myndi hækka útborguð laun um 14.400 kr. á mánuði.
  • Lækkun tryggingagjalds: Lækkun tryggingagjalds um 1 prósentustig myndi hækka útborguð laun um 6.400 kr. á mánuði.
  • Lækkun skyldulífeyris: Síðustu ár hafa greiðslur í lífeyrissjóði hækkað og eru nú að lágmarki 15,5% af launum. Lækkun skyldubundins lífeyrissparnaðar um 2 prósentustig myndi hækka útborguð laun um 15.200 kr. á mánuði.

Með þessum aðgerðum mætti auka útborguð laun um 36 þúsund á mánuði og tryggja að einstaklingar byrji fyrr að vinna fyrir útborguðum launum sínum. Hér geta bæði stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar lagt sitt af mörkum.

Tengt efni

Björn og Andri í stjórn og háskólaráð HR

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Háskólans í Reykjavík fór fram föstudaginn 6. …
13. september 2024

Átján fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum hljóta viðurkenningu

Átján fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið …
26. ágúst 2024

Sumaropnun og nýjar verðskrár

Opnunartími skrifstofu Viðskiptaráðs verður styttri frá 22. júlí til 5. ágúst, …
12. júlí 2024