Viðskiptaráð Íslands

Niðurgreiddir sumarbústaðir?

Í vikunni kynnti félags- og barnamálaráðherra breytingar á reglugerð sem gerir aðilum á landsvæðum þar sem lítið er byggt og húsnæðisverð er lágt, kleift að fjármagna nýbyggingar á hagstæðum kjörum frá Íbúðalánasjóði. Ein helsta ástæðan fyrir þessum breytingum, að sögn ráðherra, er að mjög lítið hafi verið byggt á mörgum stöðum um árabil „þrátt fyrir að eftirspurnin sé mikil“. Í þessu samhengi er forvitnilegt að skoða hvernig íbúafjöldi og fjöldi íbúða hefur þróast síðastliðin ár – en á fasteignamarkaði er íbúaþróun ráðandi og lykilþáttur eftirspurnar. Hvernig hún spilar með tekjum, vöxtum og hvernig íbúðum fjölgar ræður að miklu leyti verðinu.

Á Suðurlandi, Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu hefur íbúum 20 ára og eldri fjölgað hratt síðustu áratugi – enda tilfinnanlegur skortur á húsnæði á þessum svæðum sem leitt hefur til verðhækkana ásamt talsverðri uppbyggingu. Á öllum öðrum svæðum hefur fækkun íbúa aftur á móti orðið á hverja íbúð sl. tvo áratugi, fyrir utan Austurland þar sem hlutfallið hefur staðið í stað. Markaðurinn virðist því virka ágætlega og skilaboðin eru skýr: Það borgar sig ekki að byggja allsstaðar.

Að auki eru samgöngur, atvinna og þjónusta ráðandi þættir í húsnæðiseftirspurn og því engan veginn tryggt að íbúum fjölgi þó svo framboð íbúabygginga aukist. Aukið framboð gæti í reynd rýrt virði fasteigna þeirra sem nú þegar eiga verðlitlar eignir á þeim stöðum sem aðgerðirnar miða að.

Önnur sviðsmynd er að fólk sjái tækifæri í auknu íbúðaframboði á þessum stöðum og nýti sem sumarbústaði, en það getur varla verið ætlun ráðherra að rýra virði fasteignaeigenda í dreifðum byggðum og niðurgreiða sumarbústaði.

Nauðsynlegt er að styðja við byggð í kringum landið. Það gerist þó ekki með því að bregðast við afleiðingum en ekki orsök með liðsinni stofnunar sem hefur kostað landsmenn hundruð milljarða króna.

Ásta S.Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

Greinin birtist fyrst í Endahnúti Viðskiptablaðsins þann 29. ágúst, 2019

Tengt efni

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum

Viðskiptaráð hefur komið á framfæri umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum nr. 36/1994 (húsnæðisöryggi og réttarstaða …
25. mars 2024

Einokunarsalar

Ef fyrirhugaðar breytingar þjóna engum samfélagslegum tilgangi, hvaða ályktun má draga aðra en þá að hér sé verið að gæta hagsmuna fámennrar stéttar?
28. ágúst 2019

Fjölgun stuðningskerfa ekki til bóta

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til velferðarnefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um almennar íbúðir. Viðskiptaráð leggst gegn því að …
19. janúar 2016

Ályktun um húsnæðismál ábyrgðarlaus og skaðleg

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn vegna þingsályktunartillögu um bráðaaðgerðir til að tryggja öllum húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Að mati ráðsins er …
29. október 2015

Misráðin hugmynd að endurvekja Lyfjaverslun ríkisins

Heilbrigðisráðherra lýsti því nýlega yfir að hún sæi ástæðu til að kanna möguleika á því að endurvekja Lyfjaverslun ríkisins í því augnamiði að lækka …
4. júlí 2006

Dýra innanlandsflugið hefur aldrei verið ódýrara

Við viljum öll að um land allt sé blómleg byggð og að uppbygging, hvers eðlis sem hún er, sé ekki bundin við lítið horn á landinu. Það er þó ekki …
30. ágúst 2018