Er framtíð fyrir íslenskt atvinnulíf?

Fjallað var um niðurstöður könnunar um rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð í skýrslu sem birt var samhliða Viðskiptaþingi. 

Verkefni hins opinbera fjármögnuð af almenna vinnumarkaðinum
Viðskiptaráð hefur bent á nauðsyn þess að jafnvægi ríki á milli stærðar hins opinbera og einkageirans. Riðlist þetta jafnvægi er erfitt að sjá hvaða tekjur eigi að standa undir rekstri hins opinbera til lengri tíma. Fram til þessa hefur aðlögun í kjölfar efnahagskreppunnar nánast eingöngu átt sér stað hjá hinum almenna vinnumarkaði. Þegar allt kemur til alls eru verkefni hins opinbera fjármögnuð af almenna vinnumarkaðnum og algjört grundvallaratriði að almennur vinnumarkaður hafi burði til að standa undir þeim.

Í skýrslu Viðskiptaþings kemur fram, svo ekki verður um villst, að umsvif hins opinbera hafa vaxið hröðum skrefum á undanförnum áratugum. Það er því lykilatriði að langtímastefna stjórnvalda stefni að því að aðlögunin fari fram í ríkari mæli með hagræðingu í ríkisrekstri fremur en stöðugum skattahækkunum. Niðurstaða könnunar þingsins sýnir svo ekki verður um villst að skattahækkanir muni reynast skammgóður vermir í baráttunni við skuldavanda ríkissjóðs.

Skýrslan er aðgengileg hér

Tengt efni

Stígum skrefið til fulls - öllum til hagsbóta

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur (mál nr. 470)
2. jún 2022

Viðskiptaþing 2011: Tækifæri til að gera betur

Í viðhorfskönnun sem Viðskiptaráð lét vinna í aðdraganda Viðskiptaþings kom m.a. ...
15. feb 2011

Viðskiptaráð varar við Euro Business Guide

Viðskiptaráð vill vekja athygli aðildarfélaga sinna og annarra íslenskra ...
5. sep 2008