Viðskiptaráð Íslands

Breytt fiskveiðistjórnun - fortíðarþrá eða framtíðarhagkvæmni?

Fyrir skemmstu samþykkti Alþingi frumvarp sem fól í sér breytingar á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi, en gert er ráð fyrir að annað frumvarp af sama meiði verði samþykkt nú í haust. Í báðum þessum frumvörpum er að finna grundvallarbreytingar á því kerfi sem hér hefur verið mótað í tæpa þrjá áratugi, en meðal breytinga má nefna skerðingu aflahlutdeildar, takmarkanir á framsali aflaheimilda og upptöku nýtingarleyfa til takmarkaðs tíma. Breytingarnar fela einnig í sér hækkun veiðigjalds, bann við veðsetningu á aflahlutdeild og tilkomu sérstaks kvótaþings.

Í rökstuðningi við fyrirhugaðar breytingar hafa ráðamenn gjarnan borið við réttlæti og sanngirni. Markmiðið er öðrum þræði að vinda ofan af, að margra mati, óréttlátri upphaflegri úthlutun kvótans árið 1984. Á sama tíma hafa fylgismenn breytinganna að hluta til misst sjónar á ástæðum þess að núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi var tekið upp. Við það aukast líkur á að rangar ákvarðanir verði teknar um stefnu til framtíðar.

Ljóst er af viðbrögðum fagaðila að fyrirætlanir stjórnvalda eru gallaðar og fela í sér óhagræði sem rýrir ávinning samfélagsins af útveginum. Auðlindir sjávar eru takmarkaðar og því er mikilvægt að þær séu vel nýttar. Íslendingar hafa ekki efni á öðru fyrirkomulagi fiskveiða en því sem stuðlar að hámörkun ávinnings af fiskistofnum. Þetta er forsenda sem þarf meira vægi í umræðu um breytt fiskveiðistjórnunarkerfi.

Þó er ljóst að fiskveiðistjórnunarkerfið er ekki gallalaust. Eins og í öllum kerfum er nauðsynlegt að huga stöðugt að endurbótum sem geta leitt til frekari hagkvæmni. Fyrirætlanir um byltingu kerfisins eru hins vegar ábyrgðarlausar, sérstaklega þegar ekki liggur fyrir að eftir breytingar verði fiskveiðistjórnunarkerfið í það minnsta jafn hagkvæmt og það sem breyta skal.

Skoðunina í heild má nálgast hér

Tengt efni

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um fyrirtækjaskrá

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um fyrirtækjaskrá o.fl. lögum. Mál nr. 627. á 154. löggjafarþingi.
23. febrúar 2024

Áform um frumvarp til laga um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar

Umsögn um Auðlindina okkar – sjálfbæran sjávarútveg (mál nr. 159/2023) og áform um frumvarp til laga um nýtingu og stjórnun nytjastofna sjávar - Mál …
29. september 2023

Umsögn Viðskiptaráðs Íslands um sjávarútvegsstefnu og frumvarp til laga um sjávarútveg

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind mál en ráðið hafði áður skilað inn umsögn við málið á fyrri stigum. Til hagræðis tekur umsögnin til …
17. janúar 2024

Umsögn um breytingu á ýmsum lögum vegna þjóðlendna

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands, hér eftir samtökin, hafa tekið til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum …
4. desember 2023

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um endurnot opinberra upplýsinga

Umsögn Viðskiptaráðs Íslands um frumvarp til breytinga á lögum um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018 (Mál nr. 190/2023).
27. október 2023

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurskoðendur

Umsögn Viðskiptaráðs Íslands um frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurskoðendur og endurskoðun og lögum um ársreikninga ársreikninga …
12. október 2023