Stofnað 2000
Tilgangur félagsins er að efla viðskipti og efnahagssamvinnu landanna. Félagið mun leitast við að starfa með þeim félögum á Íslandi og í Danmörku, sem vinna að hliðstæðum verkefnum. Til að stuðla að þessum markmiðum mun félagið, eftir efnum og ástæðum, standa fyrir fræðslufundum og rástefnum og veita upplýsingar um atvinnulíf, fjárfestingarmöguleika og viðskiptamöguleika í Danmörku og á Íslandi.
Ráðið stendur fyrir fundum og ráðstefnum um málefni er tengjast viðskiptum á milli landanna.
Starfsemi ráðsins beinist að þvi að efla tengsl og auka viðskipti milli landanna. Ráðið á gott samstarf við sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn og sendiráð Danmerkur á Íslandi.