Viðskiptaráð Íslands

Störf hjá Viðskiptaráði

Viðskiptaráð er lifandi vinnustaður þar sem starfsfólk hefur rík tækifæri til að móta eigið starfsumhverfi.

Skapandi samskiptasnillingur

Viðskiptaráð leitar að hressum, skapandi en skipulögðum einstaklingi til að leiða útgáfu, miðlun og viðburðahald ráðsins. Starfið býður upp á vinnu í þéttu teymi og krefst frumkvæðis og hæfileika til að laga sig að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. Viðskiptaráð er lifandi vinnustaður sem gefur starfsfólki tækifæri til að móta eigið starfsumhverfi og verklag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með vefsíðu og samfélagsmiðlum ráðsins
  • Fjölbreytt framleiðsla efnis, t.d. fyrir vef og samfélagsmiðla
  • Umsjón útgefins efnis, útlits og hönnunar
  • Skipulag og stjórnun viðburða
  • Innri samskipti, m.a. umsjón með fréttabréfi til félaga
  • Stuðningur við annað starfsfólk á sviði málefnastarfs
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Þekking og áhugi á samskipta- og miðlunarmálum
  • Reynsla af framleiðslu efnis og umsjón samfélagsmiðla er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg
  • Þekking á Illustrator, Photoshop, Canva og sambærilegum kerfum er kostur
  • Skilningur á fjölmiðlaumhverfi er kostur
  • Þekking og áhugi á íslensku viðskiptalífi

Tekið er við umsóknum í gegnum Alfreð til og með 9. ágúst.

Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, svanhildurholm@vi.is, sími: 510-7100.