Viðskiptaráð Íslands

Norðurslóða viðskiptaráðið

Stofnað 2013

Markmið Norðurslóða-viðskiptaráðsins (IACC) er að efla og viðhalda viðskiptatengslum milli Íslands og annarra norðurslóðaríkja.

Í samræmi við markmið ráðsins skal það m.a. vinna að því að standa vörð um viðskiptatengda hagsmuni félaga sinna á
norðurslóðunum, skipuleggja fundi og ráðstefnur er varða almenn málefni um viðskiptatækifæri á norðurslóðunum, skipuleggja heimsóknir aðila í viðskiptalífi þeirra ríkja sem eiga landsvæði að norðurslóðunum og annarra áhugasamra aðila, vinna með stjórnvöldum, háskóla- og fræðasamfélaginu og öðrum viðeigandi aðilum hérlendis og erlendis, m.a. til að samþætta viðskiptatengda vinnu í málefnum norðurslóðanna og Veita beina þjónustu samkvæmt ákvörðun stjórnar, s.s. upplýsingar um viðskiptatengiliði, aðstoð við að koma á viðskiptatengslum á milli fyrirtækja og miðlun upplýsinga er varða viðskipti á svæðinu.