Viðskiptaráð Íslands

Áherslur næstu 80 daga

Við nýrri ríkisstjórn blasa mörg viðamikil og erfið verkefni sem miða að því að endurreisa íslenskt hagkerfi. Staðan í efnahagsmálum þjóðarinnar hefur versnað hratt og rekstrarumhverfi fyrirtækja samhliða. Gengi krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum hefur lækkað um nærri helming á skömmum tíma, hlutabréfamarkaður er nær horfinn, atvinnuleysi hefur aukist hratt, skuldir ríkissins hafa margfaldast, verðbólga er há og vextir einnig. Ofan á þetta hafa bæst höft á fjármagnsflutninga og gjaldeyrisviðskipti auk þess sem orðspor Íslands á erlendri grundu hefur beðið hnekki. Af þessu er ljóst að rekstarumhverfi fyrirtækja á Íslandi er með versta móti og heimilin hafa orðið fyrir verulegum búsifjum.

Verkefnaskrá nýrrar ríkisstjórnar endurspeglar að miklu leyti þessa erfiðu stöðu en vegna þess hversu starfstími hennar er naumur skiptir sköpum að viðhöfð verði skjót og markviss vinnubrögð. Afar mikilvægt er að tryggja skilvirka og hraða afgreiðslu þeirra verkefna sem mest knýr á að hrinda í framkvæmd. Því ætti ríkisstjórnin að leggja áherslu á óumdeild og hagnýt úrlausnarefni sem miða að því að greiða úr erfiðri stöðu efnahagsmála fremur en umdeild og pólitísk málefni. Ný ríkisstjórn, takmörkuð í tíma og þar með umboði, hefur í raun ekki annað hlutverk en að efla hag fyrirtækja og heimila til skemmri tíma.

Í ljósi þess hve skammt er til kosninga er eðlilegra að ákvarðanir tengdar stærri pólitískum málefnum og langtímaverkefnum í efnahagsmálum bíði þar til núverandi ríkisstjórn hefur endurnýjað umboð sitt eða önnur tekið við. Ástæður þess eru tvíþættar. Annars vegar færi dýrmætur tími til spillis í orðaskak og rökræður í þingsölum og þjóðmálaumræðu tengdar málum sem ekki eru hluti bráðavandans. Hins vegar er hætt við að samstaða þjóðarinnar í þeim mikilvægu skammtímaverkefnum sem nú blasa við myndi rýrna verulega ef ráðist yrði í mörg umdeild verkefni. Það er því skynsamlegt að ný ríkisstjórn gangi rösklega til verks með það að markmiði að greiða úr þeim aðkallandi vanda sem heimili og fyrirtæki standa frammi fyrir í dag og leggja grunn að endurreisn hagkerfisins.

Skoðunina í heild sinni má nálgast hér

Tengt efni

Mikilvægustu kosningamálin

Fáeinir dagar eru til kosninga og lýkur þá störfum 80 daga stjórnarinnar, a.m.k. þar til niðurstaða kosninga liggur fyrir. Á þeim tíu vikum sem liðnar …
17. apríl 2009

Aðgerðir í þágu atvinnulífsins

Framundan er tímabil efnahagslegrar endurreisnar í kjölfar hruns íslenska fjármálakerfisins. Verulega hefur hægst á hjólum atvinnulífs vegna …

Hvert er förinni heitið?

Nú eru rúmlega tvær vikur til kosninga og lýkur þá störfum 80 daga stjórnarinnar, a.m.k. þar til niðurstaða kosninga liggur fyrir. Á þeim níu vikum …
8. apríl 2009

Um forgangsröðun og heildarhagsmuni

Endurskipulagning íslensks hagkerfis er á krossgötum. Taka þarf margar erfiðar og sársaukafullar ákvarðanir í fjárlögum til að rétta af fjárhag …
3. desember 2010

Verkefnalisti nýrrar ríkisstjórnar

Ný ríkisstjórn hefur birt verkefnalista næstu vikna og mánaða. Atriðin sem lögð er áhersla á lúta einkum að atvinnulífinu, fjármálakerfinu, heimilunum …
2. febrúar 2009

Kreppan og leiðin fram á við

Þó svo hagfræðingar séu almennt ekki sammála um hvernig skilgreina beri efnahagskreppu, þá má segja að þar sé átti við langdreginn samdrátt …
11. mars 2009