Viðskiptaráð Íslands

Meiriháttar munur á færni eftir grunnskóla

Meiriháttar munur var á færni barna eftir grunnskóla árið 2012. Þetta sýna niðurstöður PISA-kannana í Reykjavík sundurgreindar eftir skóla. Viðskiptaráð hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu upplýsingabeiðni um nýrri gögn fyrir landið allt. Beiðnin er send vegna óbreyttra áforma ráðuneytisins um að birta ekki niðurstöður samræmds námsmats eftir skólum.

Viðskiptaráð hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu upplýsingabeiðni um niðurstöður námsmats í grunnskólum. Í beiðninni óskar Viðskiptaráð eftir PISA-einkunnum, niðurstöðum samræmdra könnunarprófa, og skólaeinkunnum sundurgreindum eftir grunnskólum.

Bréfið er sent vegna óbreyttra áforma ráðuneytisins og undirstofnana þess um að birta ekki niðurstöður samræmds námsmats sundurgreindar eftir skólum. Þannig greinir sviðsstjóri matssviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu frá því í viðtali að í nýju samræmdu námsmati, svokölluðum Matsferli, verði niðurstöður eftir skóla ekki gerðar opinberar. Er það að sögn sviðsstjórans gert þar sem gæta verði að persónuvernd.[1]

Þessi ummæli sviðsstjórans stangast á við úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Nefndin skyldaði Reykjavíkurborg árið 2014 til að birta opinberlega PISA-einkunnir frá árinu 2012 sundurgreindar eftir skóla. Í úrskurði nefndarinnar sagði: „í umræddum gögnum er hvergi að finna persónugreinanlegar upplýsingar.“[2] Borgin birti í kjölfarið einkunnirnar fyrir grunnskóla með 15 eða fleiri þátttakendur til að tryggja persónuvernd og tölfræðilega marktækni.

Fjögurra ára munur á færni

Gögnin leiddu í ljós meiriháttar mun á færni nemenda eftir grunnskólum. Þannig munaði 154 PISA-stigum á efsta og neðsta grunnskólanum. Til samanburðar fjölgar stigum um 40 fyrir hvert ár skólagöngu að jafnaði hjá þátttökuríkjum PISA. Mismunur á námsárangri á milli grunnskóla Reykjavíkurborgar jafngilti því tæplega fjórum árum af skólagöngu. Sömu gögn leiddu í ljós meiriháttar mun á lesskilningi. Þannig töldust 3% barna ekki búa yfir grunnfærni í lesskilningi í þeim skóla sem best kom út, á meðan hlutfallið nam 64% í þeim skóla sem verst kom út.

Að mati Viðskiptaráðs er brýnt að gögn um námsmat verði gerð opinber fyrir landið allt svo umræða geti farið fram um leiðir til að tryggja fullnægjandi færni barna í öllum grunnskólum. Íslensk stjórnvöld hafa þá frumskyldu að tryggja börnum fullnægjandi menntun óháð búsetu. Áframhaldandi áform um leynd yfir námsmati í einstökum grunnskólum eru á skjön við þá skyldu.

[1] Vísir.is (12. ágúst 2024): „ Matsferillinn sé svar við gagn­rýni á sam­ræmd próf.“ Slóð: https://www.visir.is/g/20242606717d/matsferillinn-se-svar-vid-gagnryni-a-samraemd-prof

[2] Úrskurðarnefnd um upplýsingamál (24. júní 2014). Úrskurður A-539/2014. Slóð: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2014/06/26/A-539-2014.-Urskurdur-fra-24.-juni-2014/

Tengt efni

Tækifæri barna ráðast af grunnskóla fremur en getu

Ný gögn frá mennta- og barnamálaráðuneytinu sýna verulegan mun á námsárangri eftir grunnskólum og ósamræmi í einkunnagjöf milli skóla. Afleiðingin er …
28. maí 2026

Enginn lærir í afneitun

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, fjallar um viðbrögð við nýrri greiningu Viðskiptaráðs á gögnum mennta- og …
2. júní 2026

Tölustafaeinkunnir, samræmd próf og fækkun borgarfulltrúa meðal vinsælustu mála

Hógvær hækkun gjalda, aukin áhersla á grunnfög, tryggt aðgengi að bílastæðum og samræmt námsmat við lok grunnskólagöngu eru þau mál sem njóta mests …
11. maí 2026

Skyldubundið samræmt námsmat til bóta

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um drög að reglugerð um samræmt námsmat í grunnskólum. Ráðið fagnar auknu gagnsæi og birtingu samanburðarhæfra …
3. febrúar 2026

Einkunnir sem hæfniviðmið er besti mælikvarðinn

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp um breytingar á lögum um framhaldsskóla sem varða innritunarferli og viðmið við val á nemendum. …
28. október 2025

Lokunardagar leikskóla margfalt fleiri hjá Reykjavíkurborg

Lokunardagar leikskóla vegna manneklu eru nítjánfalt fleiri í leikskólum Reykjavíkurborgar samanborið við önnur fjölmenn sveitarfélög. Á haustönn 2024 …
5. nóvember 2025