Viðskiptaráð Íslands

Rammaáætlun reynst dragbítur á framgang nauðsynlegra orkuskipta

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun. Frumvarpið felur í sér nokkrar úrbætur sem ráðið fagnar en ítrekar gagnrýni sína á fyrirkomulag rammaáætlunar. Í stað þess að stuðla að gagnsæi og sátt, hafi rammaáætlun reynst dragbítur á framgang nauðsynlegra orkuskipta. Mikilvægt sé að orkuvinnsla lúti sömu reglum og önnur atvinnustarfsemi, og leggur áherslu á að gera kerfið einfaldara, skilvirkara og skýrara með það að markmiði að tryggja hagkvæma og sjálfbæra nýtingu orkulinda.

Viðskiptaráð þakkar fyrir tækifærið að koma á framfæri athugasemdum við ofangreint frumvarp til breytinga á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun. Ráðið vísar til fyrri umsagna sinna [1], meðal annars vegna samráðs í tengslum við skýrslu starfshóps um endurskoðun laganna, og ítrekar þá afstöðu sína að afnema eigi lög um rammaáætlun í heild sinni.

Viðskiptaráð telur að rammaáætlun, eins og hún hefur verið útfærð og framkvæmd, hafi hvorki leitt til aukins gagnsæis né sátta í samfélaginu um orkunýtingu. Þvert á móti hefur kerfið skapað óvissu, tafir og hindranir í nauðsynlegum orkuskiptum og framleiðslu endurnýjanlegrar orku. Þá byggja lögin á úreltri norskri fyrirmynd sem hefur verið aflögð og ekkert sambærilegt kerfi þekkist í þeim löndum sem Ísland ber sig jafnan saman við. Í Evrópu er þvert á móti lögð áhersla á að einfalda regluverk og greiða fyrir framleiðslu sjálfbærrar orku.

Viðskiptaráð telur eðlilegra að orkuvinnsla lúti sömu meginreglum og önnur atvinnustarfsemi í landinu, meðal annars í gegnum lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, lög um náttúruvernd, skipulagslög og önnur almenn framkvæmdalög. Fyrirvara mætti gera um að allra stærstu og flóknustu virkjanir þurfi samþykki Alþingis, en að öðru leyti falli málsmeðferð undir hefðbundna stjórnsýslu og lögbundið samráð.

Frumvarpið felur í sér ýmsar umbætur, til að mynda sameinað samráðsferli og styttri tímafresti sem eru til bóta og eiga að auka skilvirkni. Þó er með frumvarpinu ekki bætt úr þeim grundvallarannmarka á fyrirkomulagi rammaáætlunar sem lýtur að aðkomu ráðherra og Alþingis að afgreiðslu verkefnisstjórnar. Því er ferlið áfram óskýrt, þungt í vöfum og skapar verulega óvissu. Aðkoma ráðherra og þingsins hefur verið helsta orsök tafa á afgreiðslu virkjunarkosta og er jafnframt þáttur sem hvorki er kæranlegur né endurskoðanlegur eftir hefðbundnum leiðum stjórnsýsluréttar. Þá hefur eftirlitsstofnun EFTA nýlega gert athugasemdir við virkni rammaáætlunar, ekki síst út frá pólitískum afskiptum af flokkun virkjanakosta og ólögmætra sjónarmiða að baki flokkuninni. [2]

Ráðið lýsir einnig yfir áhyggjum af því að frumvarpið geri ekki ráð fyrir efnahagslegu mati á virkjunarkostum, sem þó er lykilforsenda hagkvæmrar og sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. Þá vantar í frumvarpið skýrar skilgreiningar á áhrifasvæðum virkjana, sem leiðir til mismunandi túlkunar og óvissu í ákvörðunarferlum.

Að lokum vill Viðskiptaráð benda á að orðalag frumvarpsins varðandi leyfisveitingar og undirbúningsvinnu er óljóst. Mikilvægt er að taka af allan vafa um að heimilt sé að vinna að undirbúningi virkjunarframkvæmdar, svo sem umhverfismati og skipulagsvinnu, áður en virkjunarkostur hefur verið flokkaður í nýtingarflokk.

Viðskiptaráð leggur til að frumvarpið nái fram að ganga með fyrirvara um fyrrgreindar athugasemdir.

Umsögnina í heild sinni má lesa hér.

Tilvísanir

1 Sjá umsögn VÍ um skýrslu starfshóps um endurskoðun á lögum um rammaáætlun (febrúar 2025): Slóð: https://vi.is/umsagnir/staersti-ovissuthattur-rammaaelunar-stendur-ohaggadur

2 Umræður um þingsályktunartillögu um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða (mars 2025).101. mál á 9. fundi, 156. löggjafarþings. Slóð: https://www.althingi.is/altext/upptokur/lidur/?lidur=lid20250303T155050

Tengt efni

Rammaáætlun hindrun í nauðsynlegri orkuöflun

Rammaáætlun hefur hvorki leitt til aukins gagnsæis né sáttar í samfélaginu um orkunýtingu. Þvert á móti hefur kerfið skapað óvissu, tafir og hindranir …
25. nóvember 2025

Færa á námsmannaleyfi til samræmis við Norðurlönd

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi sem felur í sér einföldun á afgreiðslu atvinnuleyfa og breytingar á reglum um dvalarleyfi …
5. nóvember 2025

Breytingar á leigubílalögum stöðva framfarir

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um leigubifreiðaakstur. Ráðið varar við að fyrirhugaðar breytingar leiði til …
10. október 2025

Samráð við atvinnulífið lykilþáttur í loftslagsstefnu

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp sem felur í sér heildarendurskoðun á lögum um loftslagsmál. Ráðið leggur áherslu á að endurskoðun …
2. september 2025

Skref í átt að skilvirkari leyfisveitingu í umhverfis- og orkumálum

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og …
25. apríl 2025

Hætt við að íhlutun á leigumarkaði dragi úr framboði

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum. Ráðið gagnrýnir þær íhlutanir sem lagðar eru til á …
22. apríl 2025