Viðskiptaráð Íslands

Fækkun ráðuneyta: vilji 75% landsmanna

Talsverð umræða hefur verið um fækkun ráðuneyta að undanförnu. Líkt og iðulega virðist sem tvær fylkingar hafi myndast um málið, önnur með og hin á móti, en lítið hefur borið á heildstæðum rökum þessara fylkinga. Önnur þeirra virðist þó eiga talsverðan samhljóm með landsmönnum, en skv. nýlegum Þjóðarpúlsi Capacent Gallup er það vilji þriggja fjórðu hluta landsmanna að ráðuneytum verði fækkað.

Viðskiptaráð hefur fyrir sitt leyti hvatt stjórnvöld til að láta verða af fækkun ráðuneyta og hefur ráðið áður lagt fram tillögur í þeim efnum. Telur ráðið að kostir slíkra breytingu séu fjölmargir, eins og áður hefur verið reifað. Hefur ráðið þó lagt áherslu á að vörður verði staðinn um áframhaldandi tekju- og verðmætasköpun þeirra atvinnuvega sem heyra undir þau ráðuneyti sem sameinst undir hatti nýs atvinnuvegaráðuneytis.

Þá tekur ráðið undir með Samtökum atvinnulífsins að mikilvægt sé að ráðuneyti sem fara með málefni atvinnuvega og að undirstofnanir sem fjalla um þá málaflokka verði ekki aðskilin. Auk þess er rétt að skoðuð verði nánar hagkvæmni þess að færa auðlindamál undir umhverfisráðuneytið. Það er álit ráðsins að stórir málaflokkar á borð við þessa, þar sem ólíkar áherslur geta legið að baki, fái mun markvissari meðferð innan sérstakra ráðuneyta og að hagsmunamatið og umræður tengdar því verði mun gegnsærri með þeim hætti.

Tengt efni

Fækkun ráðuneyta: vilji 75% landsmanna

Talsverð umræða hefur verið um fækkun ráðuneyta að undanförnu. Líkt og iðulega virðist sem tvær fylkingar hafi myndast um málið, önnur með og hin á …
4. júní 2010

Sameining ráðuneyta: hagkvæm og táknræn tilhögun

Undanfarna daga hafa ríkisstjórnarflokkarnir rætt sín á milli um fyrirhugaða fækkun ráðuneyta, úr tólf í níu, í samræmi við umsamdar …
14. maí 2010

Ríkisfjármál - Samstaða um bætt vinnubrögð

Fram til þessa hefur stefna ríkisstjórnarinnar í aðlögun ríkisfjármála miðað að því að fara blandaða leið niðurskurðar og tekjuöflunar. Sitt sýnist …
14. júní 2010

Hagkvæmni ofar hagsmunum flokka - Samstaða um tæknilegar skattabreytingar

Þau verkefni sem núverandi ríkisstjórn stendur frammi fyrir eru ekki öfundsverð. Mikill niðurskurður blasir við og ljóst er að teknar hafa verið …
2. nóvember 2010

Hagkvæmni ofar hagsmunum flokka - Samstaða um tæknilegar skattabreytingar

Þau verkefni sem núverandi ríkisstjórn stendur frammi fyrir eru ekki öfundsverð. Mikill niðurskurður blasir við og ljóst er að teknar hafa verið …
2. nóvember 2010

Hvers vegna vill Viðskiptaráð sameina stofnanir?

Nýleg skoðun Viðskiptaráðs – „Sníðum stakk eftir vexti“ – kom út þann 17. desember síðastliðinn. Þar lögðum við fram 30 tillögur um fækkun …
12. janúar 2016