Viðskiptaráð Íslands

Hagkvæmni ofar hagsmunum flokka - Samstaða um tæknilegar skattabreytingar

Þau verkefni sem núverandi ríkisstjórn stendur frammi fyrir eru ekki öfundsverð. Mikill niðurskurður blasir við og ljóst er að teknar hafa verið margar erfiðar og óvinsælar ákvarðanir til að tryggja sjálfbærni ríkissjóðs. Ákvarðanir um leiðir til að brúa fjárlagagatið, niðurskurður eða tekjuöflun með skattahækkunum, koma ætíð til með að vera umdeildar og grundvöllur skoðanaskipta. Slíkur ágreiningur á og má ekki koma í veg fyrir samstöðu um lagfæringar á þeim brotalömum sem augljóslega eru til staðar og hafa í raun ekkert vægi í pólitískri umræðu. Nauðsynlegt er að leggja pólitískan ágreining um leiðir aðlögunar til hliðar í úrbótavinnu af því tagi.

Í nýlegri skýrslu Viðskiptaráðs og SA, Skattkerfi atvinnulífsins: Fjárfesting - atvinna - lífskjör, er leitast við að leggja umræðu um skattamál lið með uppbyggilegum ábendingum um það sem betur má fara í íslensku skattkerfi. Í skýrslunni er bent á fjölda brotalama sem eru skaðlegar fyrir atvinnulífið og lítill eða óskýr ávinningur er af fyrir hið opinbera. Í sumum tilfellum virðast ákvæði hafa verið innleidd eða þeim breytt án þess að heildaráhrif breytinganna hafi verið metin sem svo hafi haft ófyrirséðar afleiðingar eða ekki skilað tilætluðum árangri. Skýrslunni er skipt upp í 21 kafla þar sem eitt atriði er tekið fyrir í hverjum kafla. Af þessum atriðum eru 17, eða um 80%, sem ættu að vera hafin yfir pólitískt reipitog og stjórnmálamenn ættu því að geta sammælst um að breytinga sé þörf.

Mörg af þessum atriðum eru af tæknilegum toga en höfðu mun víðtækari áhrif en upphaflega var gert var ráð fyrir. Önnur varða séríslensk ákvæði, samræmingu við venjur í nágrannaríkjum eða margskattlagningu sem erfitt er að færa rök fyrir. Mörgum af þessum atriðum hefur nýlega verið breytt en önnur hafa verið við líði í fjölda ára og jafnvel áratugi. Í skoðuninni eru kynntar 17 tillögur að brýnum úrlausnum vandamála sem leynast í skattkerfinu sem ráðamenn ættu að vera sammála um að þurfi að breyta óháð pólitískum skoðunum.

Nýjustu skoðun Viðskiptaráðs má nálgast hér

Tengt efni

Hagkvæmni ofar hagsmunum flokka - Samstaða um tæknilegar skattabreytingar

Þau verkefni sem núverandi ríkisstjórn stendur frammi fyrir eru ekki öfundsverð. Mikill niðurskurður blasir við og ljóst er að teknar hafa verið …
2. nóvember 2010

Hagvöxtur eða hugmyndafræðilegir sigrar?

Allt frá hruni bankakerfisins hefur legið fyrir að mikil uppstokkun væri framundan í ríkisfjármálum. Til að brúa þá gjá sem myndast hefur í rekstri …
11. mars 2010

Um forgangsröðun og heildarhagsmuni

Endurskipulagning íslensks hagkerfis er á krossgötum. Taka þarf margar erfiðar og sársaukafullar ákvarðanir í fjárlögum til að rétta af fjárhag …
3. desember 2010

Gjörbreytt skattkerfi orðið að veruleika

Skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar hafa nú öll verið afgreidd af Alþingi, ásamt fjárlagafrumvarpi næsta árs, eftir stutta yfirlegu alþingismanna. Það …
23. desember 2009

Ríkisfjármál - Samstaða um bætt vinnubrögð

Fram til þessa hefur stefna ríkisstjórnarinnar í aðlögun ríkisfjármála miðað að því að fara blandaða leið niðurskurðar og tekjuöflunar. Sitt sýnist …
14. júní 2010

Styrkjum fjárlagagerðina: Bindandi útgjaldaþak

Í upphafi mánaðarins kynnti ríkisstjórnin fjárlagafrumvarp ársins 2011 og hafa í kjölfarið spunnist umtalsverðar umræður um þær leiðir sem lagt er til …
13. október 2010