Viðskiptaráð Íslands

Nýsköpun og atvinnuuppbygging - Hvað má læra frá Asíu?

Hvernig getur skipulagt samstarf milli viðskiptalífs og hins opinbera stutt við uppbyggingu á nýjum atvinnuvegum? Þetta er meðal þess sem fjallað verður um á morgunverðarfundi sem fram fer fram á morgun, þriðjudag.

Á fundinum verður m.a. rætt um mikilvægi þess að mótuð verði stefna í uppbyggingu atvinnuvega hér á landi og jafnframt er tilgangur hans að hvetja til þess að slík stefna verði þróuð. Málið er sérstaklega áhugavert í ljósi fyrirhugaðrar sameiningar iðnaðar-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyta í eitt atvinnuvegaráðuneyti.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mun setja fundinn en fundarstjóri er Ari Kristinn Jónsson rektor HR. Ræðumenn eru Dr. Seiichiro Yonekura, prófessor við Hitotsubashi Háskóla í Tókýó, Birkir Hólm Guðnason forstjóri Icelandair og Björn Rúnar Guðmundsson skrifstofustjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.

Að loknum erindum ræðumanna munu þeir taka við spurningum úr sal.

Smelltu hér fyrir skráningu og nánari upplýsingar

Tengt efni

Nýsköpun og atvinnuuppbygging - Hvað má læra frá Asíu?

Hvernig getur skipulagt samstarf milli viðskiptalífs og hins opinbera stutt við uppbyggingu á nýjum atvinnuvegum? Þetta er meðal þess sem fjallað …
30. ágúst 2010

Hagvöxtur eða stöðnun - Hvað getum við gert?

Hvernig getur skipulagt samstarf milli viðskiptalífs og hins opinbera stutt við uppbyggingu á nýjum atvinnuvegum? Þetta er meðal þess sem fjallað …

Hagvaxtarstefna Asíulanda - Lærdómar fyrir Ísland

16. ágúst 2010

Morgunverðarfundur: Framtíðaruppbygging atvinnuvega á Íslandi

Þriðjudaginn 31. ágúst munu Viðskiptaráð Íslands, Sendiráð Japans á Íslandi, Háskólinn í Reykjavík og japönsk fræði við Háskóla Íslands standa fyrir …
19. ágúst 2010