Viðskiptaráð Íslands

Aðalfundur Viðskiptaráðs 2012

Aðalfundur Viðskiptaráðs verður haldinn kl. 11:00 á Hilton Reykjavík Nordica (salur I), samhliða Viðskiptaþingi 15. febrúar næstkomandi. Á aðalfundi VÍ skal samkvæmt lögum ráðsins taka fyrir þessi mál:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Umræða um reikninga.
  3. Úrslit formanns- og stjórnarkjörs tilkynnt.
  4. Lagabreytingar.
  5. Kosning kjörnefndar.
  6. Tekju- og gjaldaáætlun kynnt og árgjöld ákvörðuð.
  7. Önnur mál.

Stjórnarkjör og framboð til formanns
Stjórn ráðsins er skipuð 19 einstaklingum og jafn mörgum til vara. Þeir félagar sem viljugir eru til að færa nafn sitt á ábendingarlista vegna stjórnarkjörs, og ljá félaginu krafta sína með stjórnarstörfum, eru beðnir að senda tölvupóst á thordis@vi.is fyrir miðvikudaginn 25. janúar næstkomandi.

Kosning stjórnar er óbundin þannig að kjörgengir eru allir skuldlausir félagsmenn (stjórnendur í fyrirtækjum sem eiga aðild að Viðskiptaráði). Ábendingarlistinn, með nöfnum 57 aðila sem gefa sérstaklega kost á sér til stjórnarsetu og fylgir kjörseðli, er því aðeins leiðbeinandi.

Formaður stjórnar er kosinn sérstaklega í bundinni kosningu og skal framboðum til formanns skilað til skrifstofu ráðsins fyrir miðvikudaginn 25. janúar næstkomandi. Komi aðeins fram eitt framboð til formanns fer engu að síður fara fram kosning.

Atkvæðagreiðsla
Í fyrsta sinn í sögu ráðsins fer fram rafræn atkvæðagreiðsla, en kjörnefnd ráðsins mun senda félagsmönnum rafrænan kjörseðil a.m.k. 15 dögum fyrir aðalfund eða í síðasta lagi 31. janúar. Aðildarfélagar munu þó fá frekari kynningu á aðalfundinum, kjörgögnunum, atkvæðagreiðslunni og stjórnarstarfinu með bréfi og tölvupósti fyrstu vikurnar í janúar. Með því mun fylgja slóð á kosningavefinn og sérstakt auðkenni hvers félaga, sem hann notar til að virkja sinn kjörseðil. Þá verður formlegt aðalfundarboð sent á félagsmenn og birt opinberlega í síðasta lagi miðvikudaginn 18. janúar.

Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 17:00 þriðjudaginn 14. febrúar. Úrslit kosninga verða tilkynnt á aðalfundinum, en kjörtímabil stjórnar er á milli aðalfunda sem haldnir eru á tveggja ára fresti.

Tillögur til lagabreytinga
Athygli félagsmanna er jafnframt vakin á því að tillögur til breytinga á lögum ráðsins skulu sendar stjórn eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund, eða fyrir miðvikudaginn 25. janúar næstkomandi. Nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu ráðsins í síma 510-7100.

Sjá nánar 9., 11., 15. – 18. gr. laga VÍ varðandi stjórnarkjörið.

Tengt efni

Viðskiptaþing 2012 á miðvikudag

Á miðvikudag (15. febrúar) fer fram árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs á Hilton Reykjavík Nordica. Skráningu lýkur á morgun kl. 16. Yfirskrift …
13. febrúar 2012

Viðskiptaþing 2012 - 15. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi verður haldið árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands undir yfirskriftinni „Hvers virði er atvinnulíf?“. …
30. janúar 2012

Viðskiptaþing 2012 - Hvers virði er atvinnulíf?

Miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi verður haldið árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands undir yfirskriftinni „Hvers virði er atvinnulíf?“. …
15. febrúar 2012

Aðalfundur Viðskiptaráðs 2014

Aðalfundur Viðskiptaráðs verður haldinn kl. 11:00 á Hilton Reykjavík Nordica, samhliða Viðskiptaþingi 12. febrúar næstkomandi.
9. desember 2013

Aðalfundur Viðskiptaráðs: Kosning í fullum gangi

Við minnum á að aðalfundur Viðskiptaráðs fer fram miðvikudaginn 12. febrúar kl. 11:00 á Hilton Reykjavík Nordica. Á fundinum verða m.a. kynnt úrslit …
30. janúar 2014

Aðalfundur Viðskiptaráðs

Aðalfundur Viðskiptaráðs Íslands verður haldinn klukkan 11:00 miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica (Salur I), samhliða …
15. febrúar 2012