Viðskiptaráð Íslands

Borgun nýtt fyrirmyndarfyrirtæki

Borgun hf. hefur hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum eftir að hafa undirgengist úttekt á starfsháttum stjórnar og stjórnenda fyrirtækisins. Íslenskum fyrirtækjum hefur staðið til boða að undirgangast slíka úttekt frá árinu 2011. Þá undirrituðu Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands samstarfssamning um með það að markmiði að veita öllum fyrirtækjum tækifæri á að undirgangast formlegt mat á stjórnarháttum. Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands annast framkvæmd matsins, en matsferlið byggir í meginatriðum á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja.

Borgun er fjármálafyrirtæki sem vinnur að þróun og hagnýtingu lausna á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar. Borgun hefur fengið öryggisvottun frá alþjóðlega vottunarfyrirtækinu BSI á því að fyrirtækið vinni eftir alþjóðlega viðurkenndum ferlum fyrir rekstraröryggi og meðhöndlun upplýsinga.

Borgun lauk úttektarferlinu í nóvember 2014, en það var KPMG sem framkvæmdi úttektina. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðst Borgun úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum. Borgun er heimilt að nota merki viðurkenningarinnar í kynningarstarfi sínu næsta árið til marks um árangurinn.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi óska forsvarsmönnum Borgunar til hamingju með áfangann og vona að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Með því má með virkum hætti bæta stjórnarhætti fyrirtækja og um leið efla upplýsingagjöf til markaðsaðila og annarra áhugasamra um áherslur stjórnenda í atvinnulífinu.

Nánar um úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja

Um er að ræða þrískipt úttektarferli. Stjórn viðkomandi fyrirtækis óskar eftir úttektinni og velur úttektaraðila sem safnar gögnum á borð við fundargerðir, starfsreglur, siðareglur, minnisblöð o.fl. og tekur viðtöl við stjórnarmenn og stjórnendur. Daglegir stjórnarhættir fyrirtækisins eru svo bornir saman við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Að því loknu er skýrslu skilað til stjórnar fyrirtækisins.

Í kjölfarið stendur stjórninni til boða að senda skýrsluna til Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands til nánari skoðunar. Standist viðkomandi fyrirtæki úttektarferlið er því veitt viðurkenning sem fyrirtækinu er heimilt að nota í allt að ár frá veitingu hennar. Samantekt Rannsóknarmiðstöðvarinnar um fyrirtækið verður jafnframt gerð aðgengileg á vef hennar svo ástæður viðurkenningarinnar verði öllum ljósar. Sú samantekt felur einnig í sér tillögur til úrbóta.

Ljóst er að nær útilokað er að veita endanlega staðfestingu á að allir þættir í stjórnun og rekstri fyrirtækja standist lög, reglugerðir, alþjóðleg viðmið eða tilmæli opinberra aðila. Það er því ekki markmið þessarar úttektar heldur öðru fremur að leggja mat á hvort stjórnir fyrirtækja fylgi sannanlega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Með því er hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum veitt mikilvæg innsýn í hvernig stjórnir og stjórnendur fyrirtækja haga störfum sínum almennt.

Nánari upplýsingar veitir Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum fyrirtækja, í síma 842-4333.

Umsögn Rannsóknarmiðstöðvarinnar um Borgun er aðgengileg hér.

Tengt efni

Landsbankinn er fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum

Landsbankinn hf. hefur hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum eftir að hafa undirgengist úttekt á starfsháttum stjórnar og …
19. desember 2014

Þörf á að treysta og styrkja flutningskerfi raforku

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010.
7. október 2022

Stjórnarhættir fyrirtækja - breytingar í fimmtu útgáfu

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja eru nú gefnar út í fimmta skipti á Íslandi. Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á leiðbeiningunum frá …
26. maí 2015

Nýherji er fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum

Nýherji hf. hefur hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum eftir að hafa undirgengist úttekt á starfsháttum stjórnar og …
2. febrúar 2015

Styrkjum fjárlagagerðina: Bindandi útgjaldaþak

Í upphafi mánaðarins kynnti ríkisstjórnin fjárlagafrumvarp ársins 2011 og hafa í kjölfarið spunnist umtalsverðar umræður um þær leiðir sem lagt er til …
13. október 2010