Nýherji hf. hefur hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum eftir að hafa undirgengist úttekt á starfsháttum stjórnar og stjórnenda fyrirtækisins. Íslenskum fyrirtækjum hefur staðið til boða að undirgangast slíka úttekt frá árinu 2011. Þá undirrituðu Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands samstarfssamning um með það að markmiði að veita öllum fyrirtækjum tækifæri á að undirgangast formlegt mat á stjórnarháttum. Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands annast framkvæmd matsins, en matsferlið byggir í meginatriðum á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja.
Nýherji hf. hóf starfsemi sína þann 2. apríl 1992 með samruna IBM á Íslandi hf. og Skrifstofuvéla-Sund hf. Stofnendur voru IBM í Danmörku, Draupnissjóðurinn, Vogun hf., Óli Kr. Sigurðsson og nokkrir stjórnendur IBM á Íslandi. Nýherji hf. annast sölu og tæknilega ráðgjöf á vél- og hugbúnaðarlausnum, hljóð- og myndlausnum, uppsetningu og rekstur upplýsingatæknilausna. Hjá Nýherja starfa um 270 manns en hjá Nýherjasamstæðunni hérlendis og erlendis starfa um 550 manns.
Nýherji lauk úttektarferlinu í desember 2014, en það var Capacent sem framkvæmdi úttektina. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðst Nýherji úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum. Nýherja er heimilt að nota merki viðurkenningarinnar í kynningarstarfi sínu næsta árið til marks um árangurinn.
Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi óska forsvarsmönnum Nýherja til hamingju með áfangann og vona að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Með því má með virkum hætti bæta stjórnarhætti fyrirtækja og um leið efla upplýsingagjöf til markaðsaðila og annarra áhugasamra um áherslur stjórnenda í atvinnulífinu.
Nánar um úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja
Um er að ræða þrískipt úttektarferli. Stjórn viðkomandi fyrirtækis óskar eftir úttektinni og velur úttektaraðila sem safnar gögnum á borð við fundargerðir, starfsreglur, siðareglur, minnisblöð o.fl. og tekur viðtöl við stjórnarmenn og stjórnendur. Daglegir stjórnarhættir fyrirtækisins eru svo bornir saman við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Að því loknu er skýrslu skilað til stjórnar fyrirtækisins.
Í kjölfarið stendur stjórninni til boða að senda skýrsluna til Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands til nánari skoðunar. Standist viðkomandi fyrirtæki úttektarferlið er því veitt viðurkenning sem fyrirtækinu er heimilt að nota í allt að ár frá veitingu hennar. Samantekt Rannsóknarmiðstöðvarinnar um fyrirtækið verður jafnframt gerð aðgengileg á vef hennar svo ástæður viðurkenningarinnar verði öllum ljósar. Sú samantekt felur einnig í sér tillögur til úrbóta.
Ljóst er að nær útilokað er að veita endanlega staðfestingu á að allir þættir í stjórnun og rekstri fyrirtækja standist lög, reglugerðir, alþjóðleg viðmið eða tilmæli opinberra aðila. Það er því ekki markmið þessarar úttektar heldur öðru fremur að leggja mat á hvort stjórnir fyrirtækja fylgi sannanlega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Með því er hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum veitt mikilvæg innsýn í hvernig stjórnir og stjórnendur fyrirtækja haga störfum sínum almennt.
Nánari upplýsingar veitir Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum fyrirtækja, í síma 842-4333.
Umsögn Rannsóknarmiðstöðvarinnar um Nýherja er aðgengileg hér.