Viðskiptaráð Íslands

Fyrsta úthlutun úr Rannsóknasjóði Viðskiptaráðs

Í dag fór fram fyrsta úthlutun úr Rannsóknasjóði Viðskiptaráðs Íslands. Alls var 6,5 milljónum króna úthlutað til fjögurra ólíkra verkefna. Styrkjunum er ætlað að auka samkeppnishæfni Íslands með því að efla rannsóknir og nýsköpun sem nýtast íslensku menntakerfi og atvinnulífi. Að mati valnefndar falla þau verkefni sem urðu fyrir valinu vel að markmiði sjóðsins auk þess sem gæði umsókna þóttu framúrskarandi.

Eftirtaldir aðilar hlutu styrk úr sjóðnum:

Alþjóðaskólinn – 2.500.000 kr.
Alþjóðaskólinn (International School of Iceland) er rótgróinn alþjóðlegur grunnskóli sem hlýtur styrk til að koma á fót námsframboði fyrir 8. - 10. bekk grunnskóla. Þannig er stefnt að því að brúa bil í alþjóðlegu námsframboði hérlendis en slíkt nám hefur ekki verið í boði fyrir þennan aldurshóp. Framboð alþjóðlegs náms á öllum skólastigum styrkir stöðu Íslands í samkeppni um menntað alþjóðlegt vinnuafl.

Gylfi Ólafsson – 1.500.000 kr.
Gylfi hlýtur styrk til að rita bókina Hagnýt heilsuhagfræði, sem verður kennslubók fyrir háskólanema og upplýstan almenning. Sérstök áhersla verður lögð á hagkvæmnismat sem notað er til að bera saman kostnað og ávinning einstakra meðferða eða inngripa. Bókinni er jafnframt ætlað að kynna fræðigreinina og stuðla að upplýstari umræðu um heilbrigðismál á Íslandi.

Þröstur Olaf Sigurjónsson – 1.500.000 kr.
Þröstur hlýtur styrk til rannsóknar á stjórnarháttum fyrirtækja sem miðar að því að skoða valferli, fjölbreytileika stjórna og samsetningu stjórnarmanna hérlendis. Niðurstöður rannsóknarinnar munu styrkja þekkingu innan háskólasamfélagsins á sviði góðra stjórnarhátta. Auk þess felst í henni mögulegt tækifæri til að bæta fyrirkomulag við val á stjórnarmönnum í íslenskum fyrirtækjum.

Birna Dröfn Birgisdóttir – 1.000.000 kr.
Birna hlýtur styrk til rannsóknar á þáttum sem ýtt geta undir sköpunargleði starfsfólks, en sköpunargleði er talin mikilvægur þáttur fyrir samkeppnishæfni fyrirtækja. Markmið rannsóknarverkefnisins er að fylla bil þar sem samband þjónandi forystu, starfsumhverfis og sköpunargleði hefur ekki áður verið rannsakað með þessum hætti.

Rannsóknasjóður Viðskiptaráðs Íslands er nýr sjóður sem veitir árlega styrki til einstaklinga vegna rannsókna og nýsköpunar tengdum framþróun menntunar og eflingu íslensks atvinnulífs. Valnefnd sjóðsins skipa Eggert Benedikt Guðmundsson, Gísli Hjálmtýsson og Ragnhildur Geirsdóttir.

Myndir frá úthlutuninni má sjá á Facebook-síðu Viðskiptaráðs

Tengt efni

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um Orkusjóð

Viðskiptaráð Íslands telur breytt frumvarp til breytinga á lögum um Orkusjóð til bóta og að með því séu stigin skref í átt að einfalda …
3. maí 2024

Ellefu milljónum veitt úr Rannsóknasjóði Viðskiptaráðs

Í gær fór fram önnur úthlutun úr Rannsóknasjóði Viðskiptaráðs Íslands. Alls var ellefu milljónum króna úthlutað til fjögurra verkefna. Styrkjunum er …
16. september 2016

Opið fyrir umsóknir um rannsóknastyrki

Rannsóknasjóður Viðskiptaráðs Íslands er nú opinn fyrir styrkumsóknir. Sjóðurinn er nýr og veitir árlega styrki til einstaklinga vegna rannsókna og …
8. júlí 2015

Viðskiptaráð styrkir rannsóknir í þágu menntunar og atvinnulífs

Viðskiptaráð Íslands hefur stofnsett nýjan sjóð sem ætlað er að efla íslenskt menntakerfi og atvinnulíf. Sjóðurinn mun styrkja einstaklinga sem stunda …

Auglýst eftir umsóknum um rannsóknastyrki

Rannsóknasjóður Viðskiptaráðs Íslands er nú opinn fyrir styrkumsóknir. Sjóðurinn var stofnaður árið 2014 og veitir árlega styrki til einstaklinga …
7. júlí 2016

Hádegisfundur: Úthlutun úr Rannsóknasjóði

Fyrsta úthlutun úr Rannsóknasjóði Viðskiptaráðs Íslands fer fram föstudaginn 18. september. Tilkynnt verður um styrkþega og munu þeir gera stutta …
10. september 2015