Viðskiptaráð hafnar fullyrðingum Samtaka iðnaðarins um að rangfærslur sé að finna í skýrslunni The Icelandic Economy 2026 og örmyndbandi ráðsins. Framsetning ráðsins byggir á opinberum gögnum Hagstofu Íslands þar sem allur útflutningur kemur fram. Munur á skilgreiningum og framsetningu gefur ekki tilefni til fullyrðinga um rangfærslur.

Viðskiptaráð hafnar fullyrðingum Samtaka iðnaðarins um að rangfærslur sé að finna í skýrslunni The Icelandic Economy 2026 og örmyndbandi ráðsins sem byggir á efni hennar.
Samtök iðnaðarins birtu yfirlýsingu í morgun þar sem því er meðal annars haldið fram að Viðskiptaráð geti þar ekki tækni- og hugverkaiðnaðar og gefi villandi mynd af útflutningi með því að fjalla um þrjár stórar útflutningsstoðir.
Alls útflutnings getið í skýrslu Viðskiptaráðs
Framsetning Viðskiptaráðs byggir á opinberum gögnum Hagstofu Íslands.
Í örmyndbandinu sem Samtök iðnaðarins gera athugasemdir við birtist graf þar sem útflutningi er skipt í fjóra flokka: ferðaþjónustu, sjávarafurðir, ál og stóriðju, og annað. Árið 2025 stóð síðastnefndi flokkurinn undir 24% útflutningstekna samkvæmt grafinu.
Það er því ekki rétt að Viðskiptaráð haldi því fram að allur útflutningur Íslands byggist á þremur atvinnugreinum eða horfi fram hjá öðrum útflutningsgreinum. Þvert á móti koma þær skýrt fram í sama grafi.

Í skýrslunni er þessi fjórði hluti jafnframt sundurliðaður sérstaklega. Þar kemur meðal annars fram að hann samanstandi af fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónustu, gjöldum fyrir hugverk og rannsóknir og þróun, viðskipta- og fagþjónustu, iðnaðarvörum, lækningavörum og öðrum útflutningi.
Í skýrslunni segir jafnframt um þennan hluta að hann samanstandi „að mestu af viðskiptum með vörur og þjónustu sem eru óháðar náttúruauðlindum en byggja fremur á hugviti og tækni.“
Fullyrðing um að Viðskiptaráð geti ekki þessarar starfsemi stenst því ekki skoðun í ljósi sérstakrar umfjöllunar ráðsins um hana.

Tækni- og hugverkaiðnaður er samsettur flokkur
„Tækni- og hugverkaiðnaður“ er ekki sjálfstæður flokkur í þeirri sundurliðun Hagstofunnar sem framsetning Viðskiptaráðs byggir á. Hagstofan notar þó hugtakið yfir samsettan atvinnugreinaflokk sem nær þvert yfir fjölmargar atvinnugreinar.
Það er eðlilegt að ólík samtök og greiningaraðilar flokki atvinnustarfsemi með mismunandi hætti. Samtök iðnaðarins nota tækni- og hugverkaiðnað í greiningum sínum á útflutningi. Viðskiptaráð hefur sjálft um árabil fjallað um sambærilegan þverskurð atvinnulífsins undir heitinu alþjóðageirinn og mikilvægi hans fyrir íslenskt efnahagslíf.
Slíkar skilgreiningar geta verið gagnlegar til greiningar. Þær breyta hins vegar ekki frumgögnunum og það verður ekki rangfærsla að birta opinber gögn án þess að endurflokka þau samkvæmt sömu skilgreiningu. Munur á skilgreiningum og framsetningu gefur ekki tilefni til fullyrðinga um rangfærslur.
Að framangreindu virtu vísar Viðskiptaráð fullyrðingum Samtaka iðnaðarins á bug og stendur við gögn og framsetningu í The Icelandic Economy 2026.
Uppfært 27. ágúst kl 21.40: Í fyrri útgáfu fréttarinnar sagði að tækni- og hugverkaiðnaður væri skilgreining Samtaka iðnaðarins. Rétt er að Hagstofa Íslands birtir einnig samsettan atvinnugreinaflokk undir þessu heiti í öðrum hagtölum, meðal annars veltutölum fyrirtækja. Textinn hefur verið uppfærður til samræmis.
Áður stóð:
„Tækni- og hugverkaiðnaður“ er ekki sjálfstæður flokkur í þeirri sundurliðun Hagstofunnar sem framsetning Viðskiptaráðs byggir á. Um er að ræða skilgreiningu Samtaka iðnaðarins sem nær þvert yfir fjölmargar atvinnugreinar.
Það er eðlilegt að ólík samtök og greiningaraðilar flokki atvinnustarfsemi með mismunandi hætti. Samtök iðnaðarins hafa valið að taka fjölda atvinnugreina saman undir heitinu tækni- og hugverkaiðnaður. Viðskiptaráð hefur sjálft um árabil fjallað um sambærilegan þverskurð atvinnulífsins undir heitinu alþjóðageirinn og mikilvægi hans fyrir íslenskt efnahagslíf.