Viðskiptaráð Íslands

Óbirt vinnuskjal

Þetta efni hefur ekki verið birt og er vinnuskjal. Vinsamlegast deildu því ekki, vitnaðu ekki í það og gættu trúnaðar um efni þess.

Stærri kaka, sömu sneiðar: landsframleiðsla á mann frá 2018

Landsframleiðsla á Íslandi jókst um 14% frá 2018 til 2025 en landsframleiðsla á mann aðeins um 0,5%. Framleiðni á vinnustund jókst, en á móti kom að hver starfandi vinnur færri stundir og hlutfall starfandi af íbúum lækkaði, einkum vegna öldrunar. Lífskjör batna til lengri tíma aðeins ef framleiðni vex hraðar.

Samantekt

  • Landsframleiðsla jókst um 14% frá 2018 til 2025, meira en í Noregi, Svíþjóð og ESB, en fólki fjölgaði um 13%. Landsframleiðsla á mann jókst því aðeins um 0,5%, minna en í öllum samanburðarlöndum nema Finnlandi.
  • Framleiðni á vinnustund jókst um 7,4%. Rúmur helmingur aukningarinnar skýrist af meiri fjármunum á hverja vinnustund og afgangurinn af meiri skilvirkni.
  • Vinnustundum á hvern starfandi fækkaði um 4%. Vinnuvikan styttist hlutfallslega mest í opinberri þjónustu, um 13%, en um 8% í öðrum greinum.
  • Starfandi á íbúa fækkaði um 2,8%. Öldrun fólks með íslenskan bakgrunn vegur þar þyngst.
  • Innflytjendum fjölgaði um 32 þúsund og jók það landsframleiðslu á mann lítillega, um 0,4%. Framlagið kemur mest frá innflytjendum frá EES-ríkjum.

Hagkerfið hefur stækkað hratt á síðustu árum. Landsframleiðslan jókst um 14% frá 2018 til 2025. En landsmönnum fjölgaði nánast jafnhratt, um 13%, og landsframleiðsla á mann jókst því aðeins um 0,5% á sjö árum.[1]

Kakan hefur stækkað, en sneiðarnar eru jafnstórar og áður. Í þessari greiningu er farið yfir hvers vegna.

Ísland dregst aftur úr

Hagvöxtur á Íslandi var ekki lítill í alþjóðlegum samanburði. Landsframleiðslan jókst meira en í Noregi, Svíþjóð og Evrópusambandinu. En fólki fjölgaði um 13% á Íslandi, á meðan fjölgunin var 2–6% í nágrannalöndunum. Landsframleiðsla á mann jókst því um 12% í Danmörku, tæp 6% í Noregi og Svíþjóð og 7,6% að meðaltali í Evrópusambandinu. Í Bandaríkjunum nam aukningin 14%. Aðeins Finnland stóð sig verr en Ísland.[2][3]

Árið 2018 var nærri hápunkti hagsveiflunnar, skömmu fyrir fall WOW air, og upphafsárið skiptir máli. Niðurstaðan breytist þó lítið þótt miðað sé við 2019: þá jókst landsframleiðsla á mann um 1,1% á Íslandi en 5,8% í ESB.

Þrír þættir ráða ferðinni

Landsframleiðsla á mann ræðst af þremur þáttum: hversu mikið er framleitt á hverri vinnustund, hversu margar stundir hver starfandi vinnur og hversu stór hluti íbúa er við störf. Ef einn þáttur batnar en hinir versna getur landsframleiðsla á mann staðið í stað þótt framleiðni aukist.

Það er nákvæmlega það sem gerðist. Framleiðni á vinnustund jókst um 7,4% frá 2018 til 2025. En hver starfandi vann 4,1% færri stundir og starfandi á hvern íbúa fækkaði um 2,8%. Saman átu þessir tveir þættir upp nær alla framleiðniaukninguna.[1][4]

Framleiðni eykst, en of hægt

Framleiðni á vinnustund getur aukist með tvennum hætti. Annars vegar með meiri fjármunum, til dæmis vélum, tækjum og byggingum, sem hver starfsmaður hefur til umráða. Hins vegar með því að nýta vinnuafl og fjármuni betur, til dæmis með nýrri tækni, betra skipulagi eða því að fólk og fjármagn færist til afkastameiri fyrirtækja. Hagfræðingar kalla síðarnefnda þáttinn heildarþáttaframleiðni.

Rúmur helmingur framleiðniaukningarinnar frá 2018 skýrist af meiri fjármunum á hverja vinnustund, þar af um helmingur af fjárfestingu atvinnuveganna. Afgangurinn, 3,1 prósentustig, er aukin skilvirkni.[5]

Framleiðni hefur vaxið um 1,1% á ári frá 2018, sem er heldur betra en árin eftir fjármálaáfallið. Á árunum 2000 til 2007 óx hún hins vegar um nær 4% á ári. Til að lífskjör batni þrátt fyrir öldrun og styttri vinnutíma þarf framleiðni að vaxa hraðar en nú.

Vinnuvikan styttist mest hjá hinu opinbera

Í kjarasamningum á árunum 2019 og 2020 var samið um styttingu vinnuvikunnar. Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar styttist meðalvinnuvika í opinberri stjórnsýslu, fræðslu- og heilbrigðisþjónustu úr 31,9 stundum í 27,8, eða um 13%. Í öðrum greinum styttist hún úr 36,7 stundum í 33,8, eða um 8%.[6]

Opinber þjónusta vegur minna í heildinni því þar starfar tæpur þriðjungur starfandi. Á sama tíma fjölgaði þó starfsfólki í opinberri þjónustu hraðar en annars staðar og hlutur hennar af starfandi fór úr 28% í 31%. Það dró meðalvinnuvikuna enn frekar niður.

Styttri vinnutími hefur gildi fyrir fólk, og landsframleiðsla á mann mælir ekki frítíma. En styttingunni fylgdi ekki samsvarandi aukning í afköstum. Hver vinnustund í opinberri þjónustu þarf því að skila meiru, eða þjónustan verður dýrari.

Öldrun dregur úr hlutfalli starfandi

Starfandi á hvern íbúa fækkaði um 2,8% frá 2018. Stærsti þátturinn er öldrun. Stórir árgangar eftirstríðsáranna eru að fara á eftirlaun og fólki 65 ára og eldra með íslenskan bakgrunn fjölgaði um 11 þúsund á tímabilinu, en fólki á vinnualdri aðeins um 3 þúsund. Hlutfall starfandi meðal fólks á besta vinnualdri, 20 til 59 ára, hélst hins vegar stöðugt í um 85%.[7][8]

Þá hefur erlendum starfsmönnum sem búa ekki á Íslandi fækkað, til dæmis árstíðabundnu starfsfólki og starfsfólki starfsmannaleigna. Þjóðhagsreikningar telja þau til starfandi en ekki til íbúa, og fækkunin, úr 6,1 í 4,6 þúsund, lækkar því starfandi á íbúa.[4][7]

Innflytjendur hvorki orsökin né lausnin

Innflytjendum fjölgaði um 32 þúsund frá 2018 til 2025 og hlutur þeirra af íbúum fór úr 13% í 19%.[8] Innflytjendur eru flestir á vinnualdri og hlutfall starfandi meðal þeirra er því hærra en meðal fólks með íslenskan bakgrunn, þar sem börn og eftirlaunaþegar eru taldir með. Fjölgunin hækkaði því hlutfall starfandi af íbúum.

Á móti lækkaði hlutfall starfandi meðal innflytjenda úr 74% í 69% og atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara var 8,6% árið 2025.[7][9] Samanlagt jók fjölgun innflytjenda landsframleiðslu á mann um 0,4%.

Hagstofan birtir ekki tölur um starfandi eftir upprunalandi. Viðskiptaráð áætlaði hlutfallið út frá dönskum skráargögnum, sem greina atvinnuþátttöku eftir upprunalandi, og hlutfalli örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega eftir upprunalandi á Íslandi.[10][11] Báðar heimildir sýna sömu röðun: hlutfall starfandi er hæst meðal innflytjenda frá EES-ríkjum og lægst meðal innflytjenda frá Mið-Austurlöndum og Afríku. Innflytjendur frá EES-ríkjum, nær helmingur fjölgunarinnar, skýra því mestan hluta framlagsins.

Framleiðni er eina leiðin

Ísland hefur vaxið með því að fjölga fólki, ekki með því að framleiða meira á mann. Sú leið er að lokast. Öldrun mun þyngjast á komandi árum, innflytjendur eldast eins og aðrir og vinnuvikan verður varla lengd á ný.

Eina varanlega leiðin til betri lífskjara er því aukin framleiðni. Hún ræðst meðal annars af samkeppni á mörkuðum, einfaldara regluverki, skilvirkni hins opinbera, fjárfestingu og menntun. Framleiðnivöxtur upp á 1,1% á ári dugar ekki til að vega upp styttri vinnutíma og öldrun. Hann þarf að verða meiri.

Gögn og útreikningar að baki greiningunni eru aðgengileg í gagnaskjali Viðskiptaráðs.

Tilvísanir

[1] Hagstofa Íslands, Samandregið yfirlit landsframleiðslu og þjóðartekna 1945–2025 (2026): px.hagstofa.is.

[2] Eurostat, Main GDP aggregates per capita (nama_10_pc) (2026): ec.europa.eu.

[3] U.S. Bureau of Economic Analysis, Real gross domestic product per capita (A939RX0Q048SBEA) (2026): fred.stlouisfed.org.

[4] Eurostat, National accounts employment data by industry (nama_10_a10_e) (2026): ec.europa.eu.

[5] Hagstofa Íslands, Fjármunaeign 1990–2025 og Heildartölur framleiðsluuppgjörs eftir framleiðsluþáttum 1995–2025 (2026): px.hagstofa.is.

[6] Hagstofa Íslands, Heildarfjöldi vinnustunda á viku eftir atvinnugreinum (VIN01113) og Starfandi eftir atvinnugreinum (VIN01105) (2026): px.hagstofa.is.

[7] Hagstofa Íslands, Fjöldi starfandi samkvæmt skrám eftir mánuðum, kyni, aldri og bakgrunni 2005–2026 (VIN10001) (2026): px.hagstofa.is.

[8] Hagstofa Íslands, Mannfjöldi eftir bakgrunni, kyni og aldri 1996–2026 (MAN43000) (2026): px.hagstofa.is.

[9] Vinnumálastofnun, Mánaðarskýrsla um vinnumarkaðinn, talnagögn (2026): vinnumalastofnun.is.

[10] Danmarks Statistik, Erhvervs- og beskæftigelsesfrekvenser efter oprindelsesland (RAS204) (2026): statistikbanken.dk.

[11] Alþingi, Svar félags- og húsnæðismálaráðherra um örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega eftir upprunalandi, þskj. 1508, 157. löggjafarþing (2026): althingi.is.

Tengt efni

The Icelandic Economy 2026

Búast má við hóflegum hagvexti á næstu misserum þrátt fyrir þráláta verðbólgu og vaxandi atvinnuleysi. Fjölbreytni útflutnings heldur áfram að aukast …
6. ágúst 2026

Stytting vinnuviku hefur rýrt landsframleiðslu um 223 milljarða

Stytting vinnuvikunnar hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Meðalfjöldi vinnustunda hefur fallið úr 39,5 í 35,9 tíma á viku, sem jafngildir 223 …
2. júlí 2026

Stytting vinnuviku hefur rýrt landsframleiðslu um 223 milljarða

Stytting vinnuvikunnar hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Meðalfjöldi vinnustunda hefur fallið úr 39,5 í 35,9 tíma á viku, sem jafngildir 223 …
2. júlí 2026

The Icelandic Economy 2025

Hagkerfið dróst saman á síðasta ári eftir kröftugan hagvöxt árin á undan, en horfur til næstu ára eru bjartari. Íbúum landsins fjölgar hratt, að mestu …
7. ágúst 2025

Forskot í hagstjórn

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, rýnir í áskoranir og tækifæri í hagstjórn Íslands. Hann leggur áherslu á umbætur í vinnumarkaðsmálum og …
18. febrúar 2025

The Icelandic Economy – H1 2024

Viðskiptaráð Íslands hefur birt nýja útgáfu af The Icelandic Economy. Skýrslan er á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu samhengi.
30. apríl 2024