Viðskiptaráð Íslands

The Icelandic Economy 2016: kynning

Viðskiptaráð hefur gefið út glærukynningu um efni skýrslunnar „The Icelandic Economy: Current State, Recent Developments and Future Outlook“. Í henni má finna myndir úr skýrslunni á aðgengilegu formi fyrir kynningar á íslensku efnahagslífi.

Kynninguna má nálgast á þessari slóð

Viðskiptaráð hefur staðið fyrir útgáfu skýrslu á ensku um stöðu og þróun efnahags- og stjórnmála hérlendis frá haustinu 2008. Miklar breytingar hafa átt sér stað á þeim tíma, en skortur á upplýsingagjöf til erlendra aðila hefur skert heildaryfirsýn yfir þessar breytingar og stöðu mála. Síðustu ár hefur skýrslan verið notuð af bæði innlendum og erlendum aðilum til að kynna sér aðstæður í íslensku efnahagslífi.

Skýrsluna má nálgast á þessari slóð

Tengt efni

Samkeppnishæfni Íslands minnkar á milli ára

Ísland fellur um eitt sæti milli ára í samkeppnishæfni og situr í 17. sæti af 67 …
20. júní 2024

Kynning á samkeppnishæfniúttekt IMD 2023

Kynning Viðskiptaráðs á niðurstöðum samkeppnishæfniúttektar IMD háskóla

Með skilvirkt skattkerfi að leiðarljósi

Erindi Öglu Eirar Vilhjálmsdóttur, lögfræðings Viðskiptaráðs, á Skattadeginum …
19. janúar 2022