Viðskiptaráð Íslands

Uppgjör í erlendum gjaldmiðlum - Eðlileg afleiðing alþjóðavæðingar

Aukin alþjóðavæðing íslensks hagkerfis hefur leitt til þess að stór hluti tekna og fjármögnunar margra fyrirtækja er í erlendum gjaldmiðlun. Af þessum sökum skapa gengissveiflur íslensku krónunnar mikinn kostnað og óvissu í rekstri viðkomandi fyrirtækja. Til að draga úr kostnaði hafa ýmis fyrirtæki leitað heimildar ársreikningaskrár til að færa uppgjör í erlendan gjaldmiðil. Mörg þeirra hafa þegar fengið þessa heimild en af einhverjum ástæðum lúta fjármálafyrirtæki ekki sömu lögmálum í þessu málefni.

Að mati Viðskiptaráðs eru uppgjör í erlendum gjaldmiðlum eðlilegur fylgifiskur alþjóðavæðingar, en Ísland er nú þátttakandi á markaði sem er margfalt stærri en hagkerfið í heild. Til að styrkja frekar stöðu íslenskra fyrirtækja og gera þau að fýsilegri valkosti fyrir erlenda fjárfesta er mikilvægt að fyrirtækjum verði gert kleift að færa uppgjör sitt í erlendum gjaldmiðli - án afskipta hins opinbera. Það væri óábyrgt að spyrna við fæti hvað uppgjör í erlendum gjaldmiðlum varðar og stuðla þannig að verra rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja í alþjóðlegum samanburði.

Skoðunina í heild sinni má nálgast hér

Frekari upplýsingar veita:
Frosti Ólafsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs
Haraldur I. Birgisson, lögfræðingur Viðskiptaráðs

Tengt efni

Icelandic Economy 2023

Viðskiptaráð hefur ársfjórðungslega gefið út skýrsluna The Icelandic Economy, skýrsurnar eru á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu samhengi.
31. desember 2023

Gjaldeyrishöft hvetja til erlendrar uppbyggingar

Eins og þekkt er þá voru sett á gjaldeyrishöft í kjölfar bankahrunsins til að hindra mikla veikingu krónunnar og stuðla að auknum gengisstöðugleika. …
11. nóvember 2010

Gjaldeyrishöft hvetja til erlendrar uppbyggingar

Eins og þekkt er þá voru sett á gjaldeyrishöft í kjölfar bankahrunsins til að hindra mikla veikingu krónunnar og stuðla að auknum gengisstöðugleika. …
11. nóvember 2010

Frumvarp um að félög geti gert upp í erlendri mynt

Lagt hefur verið fram frumvarp um að fyrirtæki geti sótt um heimild til ársreikningaskrár til að færa uppgjör í erlendri mynt. Heimildin tekur gildi á …
10. desember 2008

Ávinningur beinnar erlendrar fjárfestingar

Mikilvægi alþjóðamarkaða fyrir íslenskt efnahagslíf hefur farið stigvaxandi á undanförnum áratugum, hvort sem horft er til viðskipta með vörur, …
18. október 2013

Bankaábyrgðir

Viðskiptaráð hefur að undanförnu kannað umfang þess vanda sem mörg íslensk fyrirtæki standa frammi fyrir hvað varðar bankaábyrgðir hjá íslenskum …
21. ágúst 2009