Viðskiptaráð Íslands

Orkufrumvarp iðnaðarráðherra - þjóðhagslega óhagkvæmt

Í efnahagsumróti líkt og því sem nú stendur yfir er hætt við að umræða um mikilvæg þingmál, líkt og orkufrumvarp iðnarráðherra, falli milli skips og bryggju í öldugangi almennrar efnahagsumfjöllunar. Þrátt fyrir að tiltölulega lítil umræða hafi farið fram um frumvarpið að undanförnu virðast stjórnvöld engu að síður stefna að lögleiðingu þess nú á síðustu dögum vorþings. Viðskiptaráð telur skynsamlegt að löggjafinn samþykki ekki frumvarpið heldur ígrundi nánar hvernig framtíðarskipan orkumála skuli vera háttað hérlendis.

Frumvarp þetta treystir í sessi eignarrétt hins opinbera yfir orkuauðlindum og orkufyrirtækjum. Opinber eignarréttur orkuauðlinda á, skv. frumvarpinu, að vera fyrsta skref í átt til frekari markaðsvæðingar orkugeirans. Erfitt er að sjá hvernig svo megi vera.

Hagkvæm nýting orkuauðlinda hefur mikla efnahagslega þýðingu fyrir Ísland og hníga hagfræðileg rök að því að stjórnarskrárvarinn séreignarréttur sé bestur til þess fallinn að tryggja slíka nýtingu. Einkaframtakið hefur sannað gildi sitt hingað til þar sem kraftar þess hafa fengið að njóta sín. Líklegt er að það muni einnig eiga við um orkugeirann. Með því að tryggja séreignarréttinn en setja jafnframt almennar leikreglur er unnt að standa mun betur vörð um þjóðhagslega og samfélagslega hagsmuni en með þeim breytingum sem frumvarp þetta boðar.

Skoðunina í heild sinni má nálgast hér

Tengt efni

Er hagvöxtur aukaatriði?

Fjárlagafrumvarp næsta árs leit dagsins ljós nýverið og hefur vakið upp blendin viðbrögð. Mikil umræða hefur spunnist um afmarkaða málaflokka en minna …
17. október 2013

Fyrstu metrar nýrrar ríkisstjórnar

Samkvæmisleikurinn um samsetningu næstu ríkisstjórnar hefur verið í algleymingi síðastliðinn mánuð. Aðstæður í efnahagslífinu eru góðar og minna hefur …
30. nóvember 2016

Skaðlegar skattaáherslur og einkennileg viðbrögð yfirvalda

Nú eru rétt tæpir tveir mánuðir frá því fjárlagafrumvarp næsta árs var lagt fram á Alþingi. Fáum kom á óvart að þar er gert ráð fyrir stórtækum …
4. desember 2009

Athugasemdir Viðskiptaráðs við fyrirhugaðar skattabreytingar

Viðskiptaráð hefur fylgst náið með aðgerðum stjórnvalda á sviði ríkisfjármála á undanförnum vikum og mánuðum, sem margar hverjar eru afar misráðnar. …
15. desember 2009

Fjölmiðlafrumvarpið: hunsar Alþingi Samkeppniseftirlitið?

Fyrir menntamálanefnd Alþingis liggur nú frumvarp til laga um fjölmiðla, en Viðskiptaráð hefur líkt og fleiri aðilar skilað inn umsögn um frumvarpið. …
30. apríl 2010

Niðurskurður opinberra útgjalda óumflýjanlegur

Nú í vikunni mælti fjármálaráðherra fyrir fjárlagfrumvarpi næsta árs, en skv. ráðherra er megináhersla lögð á niðurskurð opinberra útgjalda til að …
11. október 2010